fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Fréttir

Sextugir menn í vanda eftir að leitað var í Peugeot-bíl þeirra

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 22:00

Norræna. Mynd: Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sextugur Frakki, Brasilíumaður á þrítugsaldri og sextugur Spánverji hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

Þeir eru í ákæru héraðssaksóknara sagðir hafa staðið saman að innflutningi á 9.000 ml af kókaínbasa með 46-47% styrkleika. Efnin voru falin í tveimur rauðvínskössum sem fluttir voru í bíl af gerðinni Peugeot 3008, en Frakkinn kom með bílinn til Seyðisfjarðar þann 12. nóvember 2025, sem farþegi með Norrænu, frá Hirtshals í Danmörku, með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum.

Lögreglan lagði hald á efnin eftir komu Frakkans hingað til lands og skipti úr fyrir gerviefni áður en bíllinn var afhentur Frakkanum. Sama dag afhenti Frakkinn Brasilíumanninum gerviefnin skammt frá Eyja hóteli við Brautarholt 10 í Reykjavík, í því skyni  að láta vinna efnin frekar, en meðákærði frá Spáni sótti Brasilíumanninn á bíl. Voru þeir handteknir stuttu síðar.

Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Mennirnir mega búast við þungum dómum, nokkurra ára fangelsi, enda um mikið magn ólöglegra fíkniefna að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Anna Kristjáns ætlaði að kaupa flugmiðann heim – Tölvan sagði nei

Anna Kristjáns ætlaði að kaupa flugmiðann heim – Tölvan sagði nei
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fær að heyra það eftir að hafa fundið Guðmundi Inga allt til foráttu – „Þetta eru ekki falleg skrif“

Fær að heyra það eftir að hafa fundið Guðmundi Inga allt til foráttu – „Þetta eru ekki falleg skrif“
Fréttir
Í gær

Stefanía hefur mátt þola ofsóknir og skemmdarverk í þrjú ár – „Svo þarf ég að óttast að foreldrarnir kæri mig“

Stefanía hefur mátt þola ofsóknir og skemmdarverk í þrjú ár – „Svo þarf ég að óttast að foreldrarnir kæri mig“
Fréttir
Í gær

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“
Fréttir
Í gær

Rekstrarstjóri Ísland Duty Free segir frétt Morgunblaðsins ósanngjarna – „Bera saman epli og appelsínur“

Rekstrarstjóri Ísland Duty Free segir frétt Morgunblaðsins ósanngjarna – „Bera saman epli og appelsínur“
Fréttir
Í gær

Dóttir Júlíönu og vinkonur urðu fyrir óhugnanlegri reynslu við Smáralind – „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“

Dóttir Júlíönu og vinkonur urðu fyrir óhugnanlegri reynslu við Smáralind – „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“