fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

Mætti með haglabyssu á lögreglustöðina

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. mars 2026 17:13

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður nokkur mætti vopnaður haglabyssu á lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík fyrr í vikunni en málið leystist þó farsællega og frekari eftirmálar verða ekki af því eins og fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Í tilkynningunni segir að nokkur viðbúnaður hafi orðið fyrr í vikunni á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík þegar þangað hafi komið maður vopnaður haglabyssu. Líkt og ávallt þegar sjáist til vopnaðra manna á almannafæri hafi vopnaðir lögreglumenn verið sendir í málið, en blessunarlega hafi viðkomandi reynst ekki hafa neitt illt í hyggju heldur ætlað sér að skila vopninu inn til förgunar.

Lögreglan vilji minna á að vopnaburður á almannafæri sé bannaður hérlendis. Þó sé líkt og segi í vopnalögum heimilt að bera á sér bitvopn „þar sem eðlilegt og sjálfsagt getur talist, svo sem við vinnu eða veiðar.“ Í vopnalögum sé jafnframt sérstaklega kveðið á um að við „burð og flutning“ skotvopna skuli þau vera „óhlaðin og í umbúðum“. Þannig séu byssutöskur og pokar ekki aðeins til hagræðis fyrir skotvopnaeigendur heldur beinlínis skylda ef fara eigi með vopnin milli staða. Þetta gildi líka þegar ferðast sé með skotvopn í ökutækjum eða öðrum farartækjum.

Ef skila eigi skotvopnum inn til förgunar fari best á því að þeim sé skilað beint inn til leyfaþjónustu embættisins, en gera eigi þá boð á undan sér með því að hringja í síma 444 1000.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fjölskyldur látinna og fyrrverandi hermenn reiðir Trump – Smættar fórnina með Svampi Sveinssyni og Grand Theft Auto

Fjölskyldur látinna og fyrrverandi hermenn reiðir Trump – Smættar fórnina með Svampi Sveinssyni og Grand Theft Auto
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Færist aftur fjör í leikinn á laugardagskvöld

Færist aftur fjör í leikinn á laugardagskvöld
Fréttir
Í gær

Hjón frá Venesúela standa vaktina á Kaffistofu Samhjálpar – „Þetta fólk er ekki árásargjarnt eða ofbeldisfullt“

Hjón frá Venesúela standa vaktina á Kaffistofu Samhjálpar – „Þetta fólk er ekki árásargjarnt eða ofbeldisfullt“
Fréttir
Í gær

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“
Fréttir
Í gær

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“
Fréttir
Í gær

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir