fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Lára Björk rifjar upp martröðina á búlgörskum spítala – „Biðin og mannvonskan kostaði mig fingur og tær“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. mars 2026 09:30

Lára Björk Sigrúnardóttir. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt rúm tvö ár eru liðin frá því Lára Björk Sigrúnardóttir var lögð inn á sjúkrahús í Búlgaríu með nýrnabilun. Lára Björk var stödd í tíu daga ferðalaga með frænda sínum og lýsti dóttir hennar því í samtali við DV á sínum tíma að erfitt væri að fá upplýsingar um ástand móður sinnar, en tvö barna Láru Bjarkar fóru út til móður sinnar.

Sjá einnig: Lára Björk liggur sárkvalin með nýrnabilun á búlgörsku sjúkrahúsi og fjölskyldan fær enga aðstoð – „Í mjög alvarlegu ástandi þar sem það er drep á fingrum og tám“

Lára Björk rifjar upp málið í myndbandi á ensku með titilinn: The Varna Hospital Hostage, My Story of Survival. Í myndbandinu segir Lára Björk að árið 2024 hafi átt að vera hennar ár. Hún hafi verið ekkja, fimm barna móðir og ætlaði að taka við nýju fyrirtæki. Tíu daga ferðalagið hafi átt að vera sannkölluð hvíldarferð en á degi tvö hafi hún fundið fyrir veikindum.

„Líffæri mín voru að bregðast. Ég var sett í öndunarvél tvisvar. Ég mátti þola miklar innvortis blæðingar tvisvar. Ég barðist fyrir hverjum andardrætti en þetta var aðeins hálf martröðin.“

Lára Björk segir að síminn hafi verið tekinn af henni um leið og hún kom á spítalann. Hún hafi því ekki getað hringt í börnin sín. Segir hún spítalann hafa sett sig á svartan lista.

Lára Björk segir að læknir að nafni Villian Pletikanov hafi verið yfir meðferð hennar. Hún segir hann hylltan sem hetju í heimalandinu meðal annars vegna vinnu hans við líffæragjafir, en hún hafi séð aðra hlið á manninum.

„Þegar ég grátbað um að fara heim til Íslands hótaði hann mér. Hann horfði í augun á mér og sagði að ef ég myndi ekki hlýða þá myndi hann skrifa eiturlyfjanotkun í skýrsluna mína og SOS International myndu þá neita að fljúga mér heim. Hann notaði lygina sem vopn til að halda mér fastri, nakinni og þegjandi.“

„Meðan ég lá fyrir dauðanum þá biðu börnin mín fyrir utan spítaladyrnar og var neitað að koma inn til mín.“

Segir Lára Björk að börn hennar hafi aðeins fengið að hitta hana tvisvar í fimm mínútur í hvort sinn. Börnum hennar hafi verið frá manni til manns þegar þau óskuðu eftir upplýsingum.

„Ég lá nakin undir þunnu laki, óþvegin í þrjár vikur með hárið þakið blóði. Þegar ég bað um vatn settu þau flösku sem ég gat ekki opnað við hliðina á deyjandi höndum mínum.“

Svona litu fætur Láru út á spítalanum í Búlgaríu.
Svona litu hendur Láru út á spítalanum í Búlgaríu.

Segir Lára lækninn Pletikanov hafa rukkað 1200 evrur á dag í reiðufé. Segist hún sannfærð um að ef börn hennar hefðu ekki barist svona fyrir hana þá „væru líffæri mín í líkama einhvers annars í dag.“

Lára segir að þegar SOS teymið hafi loksins mætt hafi starfsfólk slökkt ljósin í herbergi hennar til að fela hana. „Meðan bjargvættir mínir biðu í tvo tíma horfði ég í skugganun á starfsfólkið rúlla líkum út um bakdyrnar til að fela sönnunargögnin um raunverulegan tilgang deildarinnar.“

Segir hún finnska konu hafa staðið fast á sínu fyrir hönd Láru og ekki hætt fyrr en hún var komin með allar sjúkraskýrslur Láru í hendur og Láru sjálfa.

„Þegar ég komst loksins til Íslands fékk ég algjört taugaáfall, sannleikurinn var loksins kominn fram; engin eiturlyf aðeins blóðsýking, aðeins vanræksla. En biðin og mannvonskan kostaði mig fingur og tær. Ég er aflimuð í dag vegna þess að þeir kusu að fela sannleikann frekar en að bjarga lífi. Ég heiti Lára Björk og ég mun ekki þegja. Ég segi sögu mína fyrir þá sem komust ekki út, þá sem lifðu ekki af og fyrir börnin mín sem börðust við spillt kerfi til að koma móður sinni heim.“

Sagðist nýjan veruleika blasa við eftir aflimanir

Lára Björk var í viðtali við DV í apríl 2024 eftir aðgerð á Landspítalanum. Sagði hún nýjan veruleika blasa við eftir aflimanir.

Sjá einnig: Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“