

Hótelstjóri Hótels Breiðavíkur við Látrabjarg lenti í tölvuþrjótum sem þóttust selja fólki herbergi, meðal annars á sólmyrkvanum þegar það er löngu uppselt. Brutust þeir inn í tölvu hótelsins og sendu út kvittanir sem litu út eins og alvöru kvittanirnar.
„Mig grunaði ekki að þetta myndi koma fyrir mig. Ég er með lítið fyrirtæki hérna langt í burtu,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, sem rekur Hótel Breiðavík við Látrabjarg. Hótel sem telur 42 herbergi.
Birna segist fyrst hafa tekið eftir einhverju undarlegu í haust í tölvunni sinni, varðandi greiðslusíðuna PayPal, sem hún notar ekki. Segist hún ekki hafa mátt vera að því að skoða þetta.
Síðan fór hún að fá tölvupósta frá fólk sem sagðist vera búið að borga fyrir herbergi í gegnum PayPal og vildi frá svör varðandi hitt og þetta. En Birna kom af fjöllum og svaraði því að hún notaði ekki PayPal. Þetta var fólk sem sagðist hafa pantað og borgað fyrir herbergi í kringum sólmyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi. En þá er búist við miklu fjölmenni á svæðinu, enda á hann að sjást best við Látrabjarg. Öll herbergin á Hótel Breiðavík eru löngu uppbókuð á þessum tíma.
En netþrjótarnir, sem Birna kann engin deili á, létu sér það ekki nægja að setja upp heimasíður í nafni hótelsins heldur gerðu þeir það í gegnum hennar tölvu. Það er breidavik.com og hotelbreidavik.com, en alvöru heimasíða hótelsins er breidavik.is.
„Þeir hafa farið inn og fengið allar upplýsingar. Svo senda þeir fólki kvittanir sem eru alveg eins og þær sem koma úr kerfinu hjá mér. Með undirskrift minni og öllu saman,“ segir Birna. Sendu þeir fólki tölvupósta og sögðu að allar tegundir herbergja væru lausar en það þyrfti að greiða fyrir fram í gegnum PayPal. Þegar þeir hafi platað fé út úr fólki með þessum hætti þá hættu þeir að svara því og fólkið byrjaði að senda henni pósta.
Hún segist ekki vita hversu margar pantanir hafi verið gerðar í gegnum þessar fölsuðu síður. Aðeins þeir sem hafa haft frekari spurningar hafa haft samband við hana. Líklega mun fleiri sem gera það ekki og munu mæta í sumar.
„Sá sem sér um tölvumálin hjá mér heldur að það hafi ekkert mikið farið í gegn en við vitum það ekkert fyrr en það kemur að sumrinu,“ segir hún. Þetta séu allt saman útlendingar. Hún segir eðlilega að fólk hafi brugðist reitt við þegar upp kemur að pöntunin þeirra sem er búið að borga fyrir sé fölsuð.
Búið er að hafa samband við lögregluna sem kom og tók tölvu hótelsins til rannsóknar. Birna segir að hún hafi fengið að afrita tölvuna til þess að geta haldið rekstrinum áfram en henni verði ekki skilað fyrr en eftir eitt til tvö ár. Það hafi þurft að senda tölvuna til Reykjavíkur til rannsóknar.
„Það verður allt klikkað í kringum sólmyrkvann. Mér kvíðir fyrir því að það komi fólk sem haldi að það eigi herbergi,“ segir Birna.