fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fréttir

Gerður afturreka með fjölda ásakana á hendur eiganda Glerártorgs

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. mars 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Máli fyrirtækis sem rekur fataverslun sem var lengi á Glerártorgi á Akureyri gegn fasteignafélaginu Eik sem er eigandi byggingarinnar hefur verið vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Hélt forsvarsmaður fataverslunarinnar fram ýmsum ásökunum á hendur Eik, meðal annars að fyrirtæki hans hefði orðið mismunun og tjóni af hálfu Eikar og að leigusamningi hefði verið sagt upp með ólögmætum hætti. Krafðist fataverslunin um 246 milljóna króna í bætur auk dráttarvaxta en hafði ekki erindi sem erfiði.

Eik krafðist frávísunar en í málflutningi vegna kröfunnar var bótakrafa fataverslunarinnar lækkuð niður í 207 milljónir króna.

Fataverslunin tók fyrst verslunarrými á Glerártorgi á leigu árið 2007 en Eik tók við eignarhaldi byggingarinnar árið 2017 og var þá gerður leigusamningur milli aðila.

Sumarið 2025 var leigusamningnum rift af hálfu Eikar, vegna vanskila, en fataverslunin taldi riftunina ólögmæta en starfsemi hennar var síðan flutt frá Glerártorgi. Krafðist verslunin í kjölfarið bóta vegna tjóns af völdum lokunar vegna framkvæmda í húsnæðinu árið 2020, vegna tjóns af fækkun gesta á Glerártorgi og vegna sölutaps í kjölfar riftunar og lokunar verslunar. Eik hafnaði kröfunni.

Fullyrti forsvarsmaður fataverslunarinnar að fyrirtæki hans hefði orðið fyrir mismunun og misnotkun af hálfu Eikar sem eiganda, leigusala og markaðsráðandi aðila Glerártorgs, í leigu-, framkvæmda-, markaðs og auglýsingakjörum gagnvart tilteknum fataverslunum, samkeppnisaðilum á Glerártorgi, sem notið hafi betri kjara. Kvartaði fataverslunin yfir þessu til Samkeppniseftirlitsins en málið er enn til meðferðar þar.

Rangt

Eik sagði hins vegar lýsingu, í stefnu fataverslunarinnar, á málavöxtum vera ranga og ekki gefa heildstæða mynd af atvikum málsins og samskiptum aðila vegna riftunar leigusamningsins.

Fram kom í stefnunni að Eik hefði mismunað fyrirtækinu gagnvart samkeppnisaðilum á Glerártorgi sem væru verslunarrisar í sama rekstri sem hafi haft betri leigukjör, betri kjör vegna framkvæmda og hafi fengið að auglýsa verslanir sínar á húsi Glerártorgs.

Forsvarsmaður fataverslunarinnar hélt því einnig fram að Eik hafi í krafti markaðsráðandi stöðu sinnar beitt hann fortölum, fundahöldum, þrýstingi og þvingunum til að fá hann til óþarfra breytinga á framhlið og innréttingum verslunarinnar haustið 2020. Af þessum framkvæmdum, sem stýrt hafi verið af starfsmönnum Eikar hafi hlotist tjón vegna útgjalda og afleitt tjón vegna lokunar og tafa á framkvæmdum.

Vildi forsvarsmaðurinn einnig meina að Eik hafi vísvitandi bolað versluninni burt og að með breytingum á leigusamningi hefði það komið í veg fyrir sölu á versluninni.

Vanreifun

Bótakrafa Fataverslunarinnar var sundurliðuð í stefnunni en lögmaður Eikar benti á að krafan væri rökstudd með vísan til skjals þar sem kæmi ekkert fram um hvernig bótakrafan væri reiknuð út og skjalið gæti því ekki talist sönnunargagn. Því væri krafan vanreifuð og þar með yrði að vísa henni frá dómi.

Nefndi lögmaður Eikar síðan ýmsa liði kröfunnar sem hann sagði ekki studda neinum gögnum. Sömuleiðis hafi skort verulega rökstuðning fyrir kröfunni. Þar má nefna um 23 milljóna króna kröfu fyrir tjón fækkunar gesta á Glerártorgi en lögmaður Eikar benti á að hvergi kæmi fram hvernig þessi upphæð hefði verið reiknuð út.

Hvað varði ásakanir um brot gegn samkeppnislögum hafi skort á umfjöllun um það í stefnunni. Taldi lögmaður Eikar að litlar líkur væru á að Samkeppniseftirlitið myndi nokkuð aðhafast vegna kvörtunar fataverslunarinnar en þótt svo væri ætti það ekki að hafa áhrif á þetta mál enda væri óheimilt, samkvæmt lögum, við rekstur einkamála fyrir dómi að vísa til atvika sem kynnu að koma síðar fram.

Nauðsynlegt

Lögmaður Eikar gerði ýmsar aðrar athugasemdir við málatilbúnað fataverslunarinnar. Eik hafi sýnt fataversluninni sveigjanleika en á endanum neyðst til að rifta leigusamningnum vegna ítrekaðra vanskila á leigu. Leigan hafi raunar enn ekki verið greidd og um væri að ræða tilraun til að komast undan henni.

Vísaði lögmaður fataverslunarinnar einkum til þess að fyrir lægi að frekari gögn yrðu lögð fram og dómkvaddir matsmenn yrðu fengnir til að meta tjónið. Því ætti ekki að vísa málinu frá.

Héraðsdómur Reykjavíkur tekur hins vegar undir það með Eik að kröfunar séu svo vanreifaðar og óljósar að fyrirtækið geti ekki varist þeim. Taka verði undir með Eik að framsetning málsástæðna sé ruglingsleg og óljós grein gerð fyrir því á hvaða grundvelli bóta sé krafist samkvæmt hverjum kröfulið fyrir sig, en þeir kröfuliðir virðist falla til á mismunandi tímabilum, ýmist meðan fataverslunina leigði húsnæðið á Glerártorgi eða eftir að leigusamningi var rift og fataversluninni rýmdi húsnæðið.

Fellst dómurinn einnig á það með Eik að lýsingar forsvarsmanns fataverslunarinnar í dómskjölum séu ekki tæk sem sönnunargögn fyrir fjárhæðum dómkrafna í stefnu.

Hvað varðar þau rök lögmanns fataverslunarinnar að frekari gagna verði aflað þá komi ekkert fram um það hvaða gögn það nákvæmlega séu. Samkvæmt lögum skuli stefnandi að meginreglu leggja fram með stefnu við þingfestingu máls þau skjöl sem varða málatilbúnað hans eða hann byggir annars kröfur sínar á.

Því vísar Héraðsdómur Reykjavíkur málinu frá á grundvelli þess að ekki sé hægt að leggja dóm á það vegna vanreifunar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verulega ósátt við „lítillækkandi orðræðu“ Diljár Mistar – „Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið“

Verulega ósátt við „lítillækkandi orðræðu“ Diljár Mistar – „Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið“
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur ómyrkur í máli: „Hætt við að við séum að sigla inn í alvarlega stöðu“

Vilhjálmur ómyrkur í máli: „Hætt við að við séum að sigla inn í alvarlega stöðu“
Fréttir
Í gær

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“

Grasrót Miðflokksins logar og segir Miðflokksmenn sniðgengna í þágu „svikasjalla“ – „Stór mistök“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“