fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

Trump hótar algjörri tortímingu Írans – „Þið munuð komast að því hvað gerist“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. mars 2026 09:30

Donald Trump, Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað Íran „algjörri tortímingu“ ef landið opnar ekki Hormússundið aftur fyrir alþjóðlegum siglingum. Hótunin kemur á sama tíma og fregnir berast af hugsanlegum landhernaði Bandaríkjamanna á svæðinu.

Trump gaf írönskum stjórnvöldum um helgina 48 klukkustunda frest til að tryggja að skip gætu farið um sundið og að óbreyttu rennur sá frestur út í kvöld.

Talið er að um fimmtungur allrar heimsframleiðslu á hráolíu fari um Hormússund. Hefur Trump varað varað við því að ráðist verði á raforkuver Írans ef ekki verður orðið við kröfunum.

Stjórnvöld í Íran hafa ekki gefið eftir og raunar gefið til kynna að þau gætu lokað sundinu alfarið og beint árásum sínum að kjarnorkumannvirkjum í Ísrael. Þá segja írönsk yfirvöld að ráðist verði á orkumannvirki við Persaflóa ef Bandaríkin og Ísrael ráðast á raforkuver Írans.

Daily Mail vitnar í viðtal News of Israel við Donald Trump um stöðu mála en í viðtalinu var hann spurður að því hvort hann teldi að Íran myndi láta undan kröfum hans.

„Þið munuð komast að því hvað gerist. Þið munuð komast að því fljótlega. Þetta verður mjög gott. Algjör tortíming Írans. Þetta mun ganga mjög vel.“

Hann bætti við að írönsk stjórnvöld hefðu verið „óþæg” í 47 ár en nú væri komið að skuldadögum. „Nú eru þau að fá það sem þau eiga skilið.“

Um helgina var greint frá því að Trump íhugi að senda bandarískt herlið til Írans til að ná yfirráðum yfir Kharg-eyju. Heimildarmaður í Pentagon sagði í samtali við ísraelska fjölmiðla í gærkvöldi að sú aðgerð yrði mjög umfangsmikil ef af henni verður og gæti tekið margar vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness