fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

Steypustöðin hlaut Sýningarverðlaun Verk og vit

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 23. mars 2026 15:31

Starfsfólk Steypustöðvarinnar fagnar Sýningarverðlaununum á Verk og vit í gær. Mynd: Sigurjón Ragnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steypustöðin hlaut Sýningarverðlaun Verk og vit 2026 en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Verk og vit sem haldin var um helgina. Rúmlega 100 sýnendur eru þátttakendur á sýningunni sem var haldin nú í sjöunda sinn. Mikill fjöldi gesta hefur lagt leið sína á sýninguna nú um helgina.

„Sýningarverðlaun Verk og vit eru veitt þeim sýnendum sem skara fram úr í heildarframsetningu síns sýningarsvæðis á sýningunni. Markmiðið er að draga fram þá aðila sem nýta sýningarrými sitt á faglegan og áhrifaríkan hátt til að miðla skýrum skilaboðum, skapa upplifun og byggja upp tengsl við gesti. Við mat dómnefndar er meðal annars horft til hönnunar og uppbyggingar rýmis, aðgengi og flæðis, samskipta við gesti, notkunar á tækni og hvernig sýnandi nær að skapa eftirminnilega og lifandi upplifun,“ segir Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningarstjóri Verk og vit.

Í tilkynningu kemur fram að dómnefnd taldi Steypustöðina skara fram úr með afar faglegri og heildstæðri uppsetningu á sýningarsvæði. Límtré Vírnet hlaut annað sæti fyrir vandaða og metnaðarfulla uppsetningu og Rafmennt hafnaði í þriðja sæti fyrir lifandi og gagnvirka framsetningu að mati dómnefndar.

Á sýningunni í ár voru í fyrsta sinn voru einnig veittar viðurkenningar fyrir Nýsköpun ársins, Tækniþróun og lausnir og Sjálfbærni og umhverfisvitund.

Íslandshús hlaut Nýsköpunarverðlaunin fyrir framúrskarandi og hagnýtar lausnir í mannvirkjagerð. Mat dómnefndar var að lausnir fyrirtækisins einkennast af aukinni endingu, sveigjanleika og hagkvæmni í rekstri og viðhaldi.

Hringrás hlaut Sjálfbærniverðlaunin fyrir skýra og áhrifaríka framsetningu á hringrás efna og mikilvægi endurvinnslu. Framsetningin var aðgengileg, fræðandi og sýndi raunveruleg áhrif sjálfbærra lausna að mati dómnefndar. Vista hlaut viðurkenninguna Tæknilausn framtíðarinnar fyrir framúrskarandi kynningu á gagnadrifnum lausnum sem styðja við betri ákvarðanatöku í mannvirkjagerð. Lausnirnar voru að sögn dómnefndar kynntar á skýran og aðgengilegan hátt sem undirstrikaði raunverulegt notagildi og framtíðarmöguleika.

Aukinn metnaður hjá sýnendum

Sýningin hefur vaxið jafnt og þétt með hverju árinu og styrkt stöðu sína sem einn mikilvægasti vettvangur iðnaðarins. Sýningin hefur jafnframt sýnt að þörf er á hlutlausu samtali og óformlegum fundarstað þar sem fagaðilar koma saman , vettvangi þar sem nýjar lausnir, þekking, fræðsla og tengsl verða til. „Yfirbragð sýningarinnar verður sífellt alþjóðlegra og endurspeglar vel þá þróun sem á sér stað í greininni,“ segir Elsa.

Hún segir enn fremur að aukinn metnaður sé greinilegur hjá sýnendum, þar sem framsetning og uppbygging rýma er orðin mun vandaðri en áður. ,,Rýmin eru ekki aðeins upplýsandi heldur einnig sjónrænt aðlaðandi og skapa heildstæða og eftirminnilega upplifun fyrir gesti. Heildaryfirbragð sýningarinnar er því faglegra og glæsilegra en áður og undirstrikar þær framfarir og nýjungar sem einkenna greinina í dag.“

Dómnefnd var sammála um að Verk og vit hafi styrkt stöðu sína enn frekar sem einn mikilvægasti vettvangur greinarinnar. Sýningin einkennist af auknum metnaði, faglegri framsetningu og vaxandi alþjóðlegu yfirbragði, þar sem sýnendur leggja sífellt meiri áherslu á heildstæða upplifun og gæði í framsetningu. Dómnefndina skipuðu þau Elísabet Sveinsdóttir, Kjartan Þórisson, Edda Blumenstein, Haraldur Arnórsson, Þórhildur Laufey Sigurðardóttir og Elsa Giljan Kristjánsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Starfsfólk Landspítalans fær engin páskaegg í ár

Starfsfólk Landspítalans fær engin páskaegg í ár
Fréttir
Í gær

Fáskrúðsfjarðargöngum lokað eftir bílveltu

Fáskrúðsfjarðargöngum lokað eftir bílveltu
Fréttir
Í gær

Njósnamálið afhjúpaði ófullnægjandi vistun viðkvæmra gagna hjá lögreglu

Njósnamálið afhjúpaði ófullnægjandi vistun viðkvæmra gagna hjá lögreglu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ráðherrar settu Verk og vit

Ráðherrar settu Verk og vit
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“

Bróðir mannsins sem lést í íshelli í Breiðamerkurjökli segir græðgi um að kenna – „Hægt hafi verið að koma í veg fyrir þetta“