fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fréttir

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í lokaþætti hlaðvarpsins um Biskupsmálið er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis, afleiðingum þess að segja frá, og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma.

Þátturinn dregur fram hvernig ofbeldi hefur djúpstæð og sundrandi áhrif á fjölskyldur, oft langt umfram þann tíma sem brotin eiga sér stað. Í viðtölum þáttarins er varpað ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir.

Í þættinum heyrast raddir fólks sem varð fyrir beinum eða óbeinum afleiðingum málsins. Guðrún Ebba Ólafsdóttir segir meðal annars frá því hvað kirkjan þarf að gera til að styðja við þolendur ofbeldis. Hún segir að undanfarin ár treysti hún sér ekki til að sækja kirkjulegar athafnir, eftir áföllin í tengslum við föður sinn og kirkjuna. Hún segir einnig sína skoðun á frásögn Karl Sigurbjörnssonar í ævisögu hans. 

„Mér finnst eins og honum hafi fundist ósanngjarnt hvernig hann fékk þetta allt í fangið, og hafi þurft að bera ábyrgð á því. Hann segir líka eins og ég vildi að hann dæmdi í málinu sem var alls ekki. Það kom hvergi fram hjá mér og alls ekki í erindinu.“

Fjölmiðlar

Þór Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2, segir frá því að hafa verið í samtali við 12 konur árið 1996, sem hafi orðið fyrir ofbeldi af hendi Ólafs, en að aðeins brot af þeim hafi stigið fram. Hann greinir frá því að Ólafur sjálfur hafi verið sá sem upplýsti fjölmiðla um innihald kvörtunar Sigrúnar Pálínu til siðanefndar Prestafélags Íslands. Við heyrum Þór lýsa hvernig þrýstingi var beitt gegn fjölmiðlum úr ýmsum áttum, til að hafa áhrif á umfjöllun um Biskupsmálið. 

„Þegar ég næ í biskup og hann er nýkominn heim til Íslands þá spyr ég hann og ber þessar ásakanir undir hann, sem hann segir að séu algerlega fráleitar. Ég spyr hvort það sé rétt að hann sé sakaður um kynferðislega áreitni og hann segir í greinilegum hneykslunartón og á innsoginu „ekkert minna en nauðgunartilraun vinur minn“, og ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „já“ segir hann „þú getur sagt það í fréttinni en hafðu það ekki eftir mér“ – og það gerði ég.“ 

„Það sem er sláandi í þessu sambandi er auðvitað að hann kærir svo konurnar til lögreglu fyrir að leka þessum upplýsingum til fjölmiðla.“

„Það voru nú ekki allir sammála efnistökum inni á fréttastofu Stöðvar 2 og á RÚV vissi maður náttúrulega af óánægju með okkar fréttaflutning vegna þess að Helgi Jónsson sem var varafréttastjóri hafði til dæmis, fyrir utan að taka öll þessi drottningarviðtöl við biskupinn, hellt sér yfir mig og taldi algerlega fráleitt hvernig við værum að tæta æruna af biskupnum.“

„Þá fáum við fréttir af því að forstjóri Stöðvar 2 sem þá var Jón Ólafsson, hefði setið og snætt með biskupnum á veitingastað. Og stuttu síðar þá kemur hann til mín rétt fyrir fréttir og sest við hliðina á mér og biður mig um að flétta inn í fréttina mína af biskupnum skoðanakönnun sem annar fjölmiðill hafði gert, sem sýndi að biskup nyti stuðnings úti í samfélaginu… svona var þrýstingurinn, hann var beinn og óbeinn og meira en lítið óþægilegur.“ 

Þöggun

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir frá því hvernig reynt var að þagga niður í Guðrúnu Jónsdótttur heitinni, þáverandi talskonu Stígamóta, þegar hún stóð með konunum opinberlega. Gerð hafi verið húsleit á Stígamótum og Guðrún yfirheyrð í fjórar klukkustundir af lögreglu. Við ræðum einnig um hvernig tekið skal á ofbeldismálum innan fyrirtækja. 

„Valdakerfið sest á þessar konur með öllum sínum þunga og Stígamót líka. Reynir að véfengja allt saman og alveg ótrúlega mörgum brögðum beitt.“

Brynhildur G. Flóvenz, dósent emeritus í lögfræði við Háskóla Íslands, og frænka Guðrúnar Ebbu, segir frá sinni upplifun af því að vera aðstandandi Guðrúnar Ebbu og hvernig hún féll sjálf í þá gryfju að trúa á sakleysi Ólafs í byrjun. 

„Þetta er það sem ég sé mest eftir á minni ævi að hafa gert, vegna þess að ég sá það svo seinna, að alveg sama hvað… í upphafi að minnsta kosti, ætla ég alltaf að taka afstöðu með þeim konum sem segja frá ofbeldi, áreitni eða einhverju slíku.“

Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, segir frá því þegar þau hjónin flúðu Ísland og fluttu til Danmerkur og hvernig hann hefur tekist á við sorgina eftir fráfall hennar.

„Ég með mitt fyrirtæki fékk minna og minna að gera, ég var með viðgerðir fyrir aðra gullsmiði. Það minnkaði og minnkaði alltaf hverjir vildu fá mig til að vinna fyrir sig, því ég var kærastinn hennar Pálu. Og það endaði í rauninni með því að þetta gekk ekki fyrir mig lengur, og gekk heldur ekki fyrir Pálu því hún átti erfitt með að vera utandyra því fólk ógnaði henni og var óforskammað ef við vorum úti að versla eða eitthvað.“

Frásagnirnar varpa ljósi á það hvernig valdakerfi, stofnanir og samfélagsleg viðhorf brugðust þolendum og þeim sem studdu þá, en einnig hvernig einstaklingar sýndu hugrekki, samkennd og ábyrgð.

Rannsóknarskýrsla kirkjuþings um biskupsmálið, sem var gerð opinber árið 2011 og mikið rædd á sínum tíma, er í dag ekki lengur aðgengileg á opinberri vefsíðu kirkjunnar.

Meginkjarni lokaþáttarins er hvað samfélagið geti lært af málinu. Hvernig er best að bregðast við þegar þolendur segja frá? Hvernig tryggjum við að valdastigveldi og stofnanir verði ekki notuð til að þagga niður í fólki? Og hvernig byggjum við upp samfélag sem hlustar betur, tekur þolendur alvarlega og dregur gerendur til ábyrgðar?

Markmið þáttanna er ekki að opna gömul sár að óþörfu, heldur að stuðla að skilningi, ábyrgð og lærdómi. Þær konur sem stigu fram í biskupsmálinu breyttu íslensku samfélagi til hins betra, þó það hafi kostað þær meira en nokkur ætti að þurfa að greiða.

Í lok þáttarins er þáttaserían tileinkuð öllum þeim sem hafa lifað af ofbeldi, og einnig þeim sem hafa fallið frá fyrir aldur fram vegna ofbeldis eða afleiðinga þess.

Hlaðvarpsstjórnandi og höfundur er Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness

Réttarhöld hafin yfir Stebba Jak í Héraðsdómi Reykjaness