fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Lögreglan varar við grunsamlegum tölvupóstum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2026 14:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

(Tilkynning frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu)

Undanfarið hafa netöryggissveitinni CERT-IS og lögreglunni borist fjöldi tilkynninga vegna grunsamlegra tölvupósta sem sendir hafa verið á íslenska notendur.

Tölvupóstarnir eiga það allir sameiginlegt að vara fólk við að það muni verða fyrir tjóni ef það grípur ekki strax til aðgerða. Svikapóstarnir eru sendir í nafni þekktra þjónustufyrirtækja svo sem iCloud, Google og nafni íslenskra fjarskiptafyrirtækja. Dæmi um fyrirsagnir þeirra eru „Nettengingin þín er óvarin“, „Geymslan er full, Eyðing hafin“ og „Tafarlausra aðgerða krafist – gagnageymslan er full“.

Fólk sem hefur smellt á hlekkina þarf hins vegar ekki að óttast því ólíkt öðrum herferðum þar sem reynt er að komast yfir lykilorð eða greiðslukortaupplýsingar er þessi herferð að beina fólki á lögmæt þjónustufyrirtæki. Markmiðið er að fá fólk til að kaupa vörur af þessum fyrirtækjum sem borga svikurunum þóknun fyrir. Þessi herferð er ansi umfangsmikil og því getur það reynst rekstraraðilum ansi erfitt að koma í veg fyrir að svikapóstarnir berist til sinna notenda.

Það er því mikilvægt að vera á varðbergi fyrir svikapóstum sem þessum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvorki mjólk né rjómi eru aðalhráefnin í tveimur þekktustu ístegundum Íslands

Hvorki mjólk né rjómi eru aðalhráefnin í tveimur þekktustu ístegundum Íslands
Fréttir
Í gær

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“
Fréttir
Í gær

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Í gær

Mannslát á Kársnesi: Verður ákærður fyrir manndráp

Mannslát á Kársnesi: Verður ákærður fyrir manndráp
Fréttir
Í gær

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Í gær

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði