fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

„Ef Laufey nennir að halda þessu áfram, þá eru henni allir vegir færir“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2026 08:00

Laufey hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu misseri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laufey Lín Jónsdóttir hélt tvenna vel heppnaða tónleika í Kórnum um liðna helgi og er óhætt að segja að Íslendingar séu búir að eignast nýja stórstjörnu í tónlistarheiminum.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Sigtrygg Baldursson, trommara og sérfræðing hjá Tónlistarmiðstöð, þar sem hann er spurður út í magnaðan árangur Laufeyjar á síðustu misserum.

Laufey hefur haldið hverja stórtónleikana á fætur öðrum og fyllt nokkrar af stærstu tónleikahöllum Bandaríkjanna og Bretlands. Þá eru framundan tónleikar í Asíu og Ástralíu.

Þegar Sigtryggur er spurður hvað skýri þessa velgengni Laufeyjar segir hann að hún höfði til mjög breiðs hóps.

„Það eru engin aldursmörk á því. Svo er það þessi tegund tónlistar sem hún er að skapa sem byggist á gömlum grunni en er samt ný í eðli sínu,“ segir hann meðal annars.

Sigtryggur segir að Laufey sé einstakur tónlistarmaður. Á tónleikunum í Kórnum hafi hún hlaupið um sviðið með dönsurunum og sungið óaðfinnanlega á sama tíma. „Hún fipaðist aldrei, fyrir utan að hún spilar á gítar, píanó og selló og gerir það allt mjög vel. Það var tilkomumikið að fylgjast með henni.“

Sigtryggur segir við Morgunblaðið að Laufeyju séu allir vegir færir og hún geti farið eins langt og hana langar.

„Hún á sér marga trygga aðdáendur sem eru ekki að fara að snúa við henni baki. Margir þeirra eru ungir hlustendur sem munu alast upp með tónlist hennar. Ef Laufey nennir að halda þessu áfram, þá eru henni allir vegir færir.“

Ítarlega er rætt við Sigtrygg í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Í gær

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Í gær

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Starfsmaður leikskóla á Akranesi grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Í gær

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins