fbpx
Föstudagur 20.febrúar 2026
Fréttir

Afhentu 17 nýja sjúkrabíla

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 19:12

Fulltrúar frá Fastus, Öskju og slökkviliði höfuðborgarsvæðinsins við afhendingu sjúkrabílanna. Sjúkrabílarnir eru allir af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fastus heilsa og bílaumboðið Askja afhentu Rauða Krossinum á dögunum 17 nýja sjúkrabíla sem er mikill ávinningur fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi.  Sjúkrabílarnir eru allir af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter. BAUS AT fyrirtæki í Póllandi sér um breytingar á bílunum. 

Á síðasta ári var opnað fyrir stærsta sjúkrabílaútboð sem haldið hefur verið  hér á landi, þar sem boðnir voru út 25 sjúkrabílar. Í útboðinu var einnig ákvæði um mögulega viðbót upp á allt að 25 bíla og því alls 50 sjúkrabíla. Nú hafa 17 verið afhentir og von er á átta bílum til viðbótar á næstunni. Fastus heilsa, heilbrigðissvið Fastus, vann útboðið í samstarfi við Öskju og BAUS AT.

,,Þetta er stór áfangi fyrir Fastus og frábær viðurkenning á faglegri þekkingu og reynslu okkar í heilbrigðisgeiranum. Við erum full tilhlökkunar að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu sjúkraflutninga á Íslandi,“ segir Róbert Lee Tómasson, vörustjóri hjá Fastus heilsu í tilkynningu.

Fastus heilsa hefur tekið þátt í sjúkrabílaútboðum síðan 2014 og hefur unnið öll útboðin hingað til. Á þessum tíma hefur Fastus afhent samtals 99 sjúkrabíla og styrkt þannig heilbrigðisþjónustu um allt land.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fylgdust með svikahröppum að verki í rauntíma

Fylgdust með svikahröppum að verki í rauntíma
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Vita ekki hversu mörg börn voru send í Bakkakot

Vita ekki hversu mörg börn voru send í Bakkakot
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Viðsnúningur í Kiðjabergsmálinu – Áður sýknaður en nú sakfelldur og dæmdur í 10 ára fangelsi

Viðsnúningur í Kiðjabergsmálinu – Áður sýknaður en nú sakfelldur og dæmdur í 10 ára fangelsi