fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Fréttir

Vilja varanlegt skautasvell í Hafnarfirði

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 12:42

Hjartasvellið í Jólaþorpinu. Mynd/Hafnarfjarðarbær

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar Samfylkingar í Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar hafa lagt til að kannaður verði möguleikinn á því að koma upp varanlegu skautasvelli í bænum. Svelli hefur verið komið uppi þegar Jólaþorpið hefur verið opið við miklar vinsældir.

Málið var lagt fram á fundi nefndarinnar í morgun. Hljóðaði tillagan um að kannaður yrði möguleikinn á að koma upp varanlegu skautasvelli í húsnæði í eigu bæjarins og hver kostnaðurinn við það yrði.

„Skautasvell hefur verið fastur liður í tengslum við Jólaþorpið og notið mikilla vinsælla. Fulltrúi Samfylkingarinnar í menningar- og ferðamálanefnd telur því fulla ástæðu til að kanna möguleikana á uppsetningu á varanlegu skautasvelli,“ segir í tillögunni. „Með því móti tæki Hafnarfjörður vissa forystu sveitarfélaga utan Reykjavíkur en jaðarsveitarfélög verða að vera á tánum til að tryggja straum ferðamanna til bæjarins. Skautasvell gæti verið einn hluti í því ferli.“

Svellið í Jólaþorpinu hefur verið plastsvell, það er ekki frosið. Samkvæmt tillögunni yrði bæði slíkur kostur kannaður sem og náttúrulegt svell.

Var málinu vísað til umsagnar hjá Íþrótta- og tómstundarnefnd sem og hjá Umhverfis-og framkvæmdaráði. Starfshópur er að störfum um uppbyggingu tómstundarmiðstöðvar í Hamranesi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ragnar gefur lítið fyrir rök Landspítalans – Segir að Bertolli sé hert smjörlíki sem hann ráðleggur engum að borða

Ragnar gefur lítið fyrir rök Landspítalans – Segir að Bertolli sé hert smjörlíki sem hann ráðleggur engum að borða
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand