fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026
Fréttir

Barnaheill og Borgarleikhús í samstarf með börnum á flótta

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 11:27

Egill Heiðar Anton Pálsson leikhússtjóri Borgarleikhússins, Tótla Sæmundsdóttir framkæmdastjóri Barnaheilla og Eva Halldóra Guðmundsdóttir yfirkennari leiklistarskóla Borgarleikhússins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnaheill og Leiklistarskóli Borgarleikhússins undirrituðu í gær samstarfssamning um leiklistarkennslu fyrir börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd, og sækja skóla í Hafnarfirði. Haldnar verða leiklistarsmiðjur og námskeið í Víðistaðaskóla og Hvaleyrarskóla í mars, með það að markmiði að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna.

Samstarfið byggir á verkefninu Létti, sem Leiklistarskóli Borgarleikhússins hóf árið 2020 fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hjá Reykjavíkurborg. Verkefnið var svo útvíkkað fyrir tveimur árum, þegar Leiklistarskólinn hóf samvinnu við móttökudeild Seljaskóla, og enn frekar árið 2025 þegar móttökudeild Breiðagerðisskóla bættist við.

Með samstarfssamningi Barnaheilla og Borgarleikhússins gefst börnum í Hafnarfirði nú kostur á að taka þátt í verkefninu en verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ hefur milligöngu um samstarfið við móttökudeildirnar. Leiklistarkennslan býður upp á öruggt og skapandi rými þar sem börnin geta tjáð sig, kynnst öðrum í sömu stöðu, og þróað félagsfærni sína. Leiklistin hvetur til samvinnu og samskipta sem eru mikilvægir þættir í því að aðlagast nýju samfélagi. Börnin læra að vinna í hópi, hlusta á aðra og koma skoðunum sínum á framfæri.

Notast er við áfallamiðaða nálgun til að koma til móts við bakgrunn barnanna, sem mörg hver hafa upplifað stríð, aðskilnað frá fjölskyldu, og slæmar aðstæður sem mæta fólki á flótta. Sum hafa verið á flótta allt sitt líf, og skólaganga þeirra er í mörgum tilfellum mjög brotin eða jafnvel engin. Leitast er við að skapa vettvang þar sem börnin geta unnið úr þessum tilfinningum, og fengið tækifæri til að tjá sig á öruggan og skapandi hátt í gegnum leiklist.

Barnaheill og Leiklistarskóli Borgarleikhússins fagna því að geta nú boðið börnum í móttökuskólum Hafnarfjarðar að taka þátt í leiklistarverkefninu Létti.

Tótla Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla og Egill Heiðar Anton Pálsson leikússtjóri Borgarleikhússins undirrita samstarfssamninginn.

Nánar um leiklistarverkefnið Létti

Í verkefninu Létti vinnur starfsfólk móttökudeilda þeirra skóla sem börnin sækja, náið með leiklistarkennurum Leiklistarskóla Borgarleikhússins. Þannig er hægt að veita nemendunum nauðsynlegan stuðning í utanumhaldi og valdeflingu þeirra á námskeiðinu, en einnig í kennslu og skólastarfi utan þess.

Námskeiðið fer í fyrstu fram í skólunum þar sem farið er í hópeflis- og spunaleiki, ásamt því að kynna leikhúsið fyrir börnunum en sum hafa hvorki séð leikrit né komið í leikhús. Hópnum er svo boðið á sýningu í Borgarleikhúsinu, og börnin fá að kynnast öllu því starfi sem fer fram baksviðs og til undirbúnings leiksýninga. Seinni hluti námskeiðsins fer fram í leikhúsinu þar sem þau fá að æfa og að lokum setja upp litla sýningu.

Reynslan hefur sýnt að fyrir þau börn sem hafa tekið þátt í verkefninu er leiklistin ekki bara leikur heldur einnig vettvangur til að valdeflast, efla sjálfstraust og tengjast betur innbyrðis. Þannig verða þau betur í stakk búinn til að aðlagast nýju samfélagi, skólanum og samnemendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segja Kópavogsbæ senda lágtekjufjölskyldum kaldar kveðjur – „Gjörsamlega glatað lið“

Segja Kópavogsbæ senda lágtekjufjölskyldum kaldar kveðjur – „Gjörsamlega glatað lið“
Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað varð um Rússa sem störfuðu fyrir Ísland

Vill fá að vita hvað varð um Rússa sem störfuðu fyrir Ísland
Fréttir
Í gær

Berklasmit greindist hjá tveimur starfsmönnum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Berklasmit greindist hjá tveimur starfsmönnum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Fréttir
Í gær

Ætlar ekki að taka sæti á lista Viðreisnar – „Á þeim stað að standa núna á ganginum og horfa í kringum mig á þær dyr sem mögulega opnast“

Ætlar ekki að taka sæti á lista Viðreisnar – „Á þeim stað að standa núna á ganginum og horfa í kringum mig á þær dyr sem mögulega opnast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefanía hefur mátt þola ofsóknir og skemmdarverk í þrjú ár – „Svo þarf ég að óttast að foreldrarnir kæri mig“

Stefanía hefur mátt þola ofsóknir og skemmdarverk í þrjú ár – „Svo þarf ég að óttast að foreldrarnir kæri mig“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“

„Það er nú svo merkilegt með hann Braga Guðbrandsson, að hann virðist ýmist ekki muna nokkurn skapaðan hlut eða yfirhöfuð kannast við“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bretar sjá eftir Brexit – Mikill meirihluti vill aftur í Evrópusambandið

Bretar sjá eftir Brexit – Mikill meirihluti vill aftur í Evrópusambandið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi

KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi