
Maður á sextugsaldri, sem býr í Vogum, hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Honum er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar 2024, á Sportbarnum Ölver að Álfheimum 74 í Reykjavík, kastað glerflösku í höfuð manns um þrítugt. Hlaut brotaþolinn yfirborðsáverka á höfði og tognun og ofreynslu á hálshrygg.
Brotaþolinn krefst miskabóta að fjárhæð 600 þúsund krónur.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 11. febrúar næstkomandi.