Í gær hófst aðalmeðferð í Gufunesmálinu svokallaða en þrír eru ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu, rán og tilraun til fjárkúgunar.
Sjá einnig: Gufunesmálið – Lúkas Geir í vitnastúku – Stefán sagði hann vera höfuðpaurinn
Lúkas Geir Ingvarsson, einn hinna ákærðu, sagði í vitnastúku í gær að markmiðið með aðgerðinni hafi verið að hitta mann sem héldi að hann væri að fara að hitta stelpu undir lögaldri. Markmiðið væri að spila á skömm viðkomandi og hafa af honum fé gegn því að hann yrði ekki afhjúpaður opinberlega. Aldrei hafi verið ætlunin að þetta færi eins og raun varð.
Sjá einnig: Rafmagnað andrúmsloft í Héraðsdómi Suðurlands – Stefán svaraði fyrstur til saka fyrir morðið á Hjörleifi
Helgi segir við Morgunblaðið að tálbeituaðgerðir eins og þessi sem ákært er fyrir séu aðeins skálkaskjól til að ræna og beita ofbeldi.
„Þetta snýst þannig séð ekkert um kynferðislega misnotkun á börnum,“ segir Helgi sem veltir fyrir sér hvort ekki hafi verið tekið nógu fast á slíkum tálbeitumálum. Gufunesmálið geti að einhverju leyti verið afleiðing þess.
„Kannski höfum við ekki sett fótinn niður og sagt að þetta sé alls ekki réttlætanlegt og alls ekki það sem við eigum að gera, að taka lögin í okkar eigin hendur,“ segir Helgi á forsíðu Morgunblaðsins í dag.
Sjá einnig: Gufunesmálið:Matthías spurður út í viðtal sitt við DV – Segist hafa óttast Stefán og Lúkas