fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Stefán Einar hæddist að formanni Sjálfstæðisflokksins á bjórkvöldi -„Þarf að gyrða sig í brók“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. júní 2025 18:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson fór hörðum orðum um formann Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sem og reyndar marga fleiri á bjórkvöldi hlaðvarpsins Þjóðmál sem fór fram á Akureyri á fimmtudaginn. Þar hvatti hann forystu flokksins til að gyrða sig í brók og hæddist að formanninum fyrir að hafa látið öðrum eftir að taka slaginn við meirihlutann á Alþingi.

Göngugarpurinn Guðrún

Stefán Einar sagði þar formannstíð Guðrúnar hafa farið furðulega af stað. „Hún auðvitað vann þessar kosningar á landsfundinum og svo fór hún í tveggja vikna útskriftarævintýraferð, var það ekki til Bandaríkjanna? Sonur hennar að útskrifast? Glæsilegt. Og svo kom hún heim.“

Þá hafi Stefán reiknað með því að varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason, fengi smá andrými eftir harða baráttu á þingi.

„Nei, þá voru helstu fréttirnar af Guðrúnu þær að hún tók þátt í 100 kílómetra gönguáskorun í maí og ég verð að viðurkenna að mér brá dálítið í brún. Ég hefði haldið að formaður Sjálfstæðisflokksins þyrfti að bretta dálítið upp ermarnar og taka á honum stóra sínum í þinginu þar sem allt er í klessu. Vinnubrögðin svo hroðvirknisleg og ömurleg að annað eins hefur ekki sést. Og að hún þyrfti bara að geyma þessa gönguáskorun allavega fram í júlí þegar þingið fer í hvað? 18 vikna sumarleyfi?“

„Auðvitað vill maður kannski ekki fara of djúpt í þetta en það er alveg ljóst að forysta Sjálfstæðisflokksins þarf að gyrða sig í brók og taka á honum stóra sínum, næg eru tækifærin til að taka á stjórnarmeirihlutanum.“

Skaut á ráðherra

Vék Stefán þá máli sínu að ráðherrum flokks fólksins og endurtók leikinn frá bjórkvöldi Þjóðmála sem fór fram í mars þar sem hann hæddist að enskukunnáttu mennta- og barnamálaráðherra svo eftir var tekið.

Að þessu sinni stakk hann upp á því að láta prenta rautt letur á gula boli með textanum: I am a very good morning. Eins gerðu hann og Þjóðmála-félgar grín að því þegar Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, týndi VISA-kortinu sínu erlendis í maí og lenti í erfiðleikum með að loka því.

„Við vissum að Guðmundur væri ólæs, það er að segja menntamálaráðherrann, en við héldum að samgönguráðherrann kynni á þetta. En það gerir hann því miður ekki.“

Sjá einnig: Starfsmenn Morgunblaðsins létu vaða á súðum á bjórkvöldi – Sögðu Guðmund Inga varla læsan og líktu Ásthildi Lóu við frægan eltihrelli

Dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, fékk líka að heyra það fyrir mál fráfarandi vararíkissaksóknara, en starfslok Helga Magnúsar Gunnarssonar eru metin á 200 milljónir.

„Heyrðu, þau ná ekki að leysa vandamál á kaffistofunni hjá ríkissaksóknara og það kostar ríkissjóð 300 [sic] milljónir. Menn eru yfirleitt í vandræðum með að kaupa kaffivél á 300 þúsund krónur en af því að Helgi Magnús er eitthvað dónalegur á kaffistofunni og segir einhverja lesbíubrandara þá þarf bara að borga manninn út fyrir 300 [sic] milljónir. Þetta er dýrasti lesbíubrandari sem sagður hefur verið í sögunni. Ráðherrann var búin að segja, Guðrún Hafsteinsdóttir göngugarpur, var búin að segja: Heyrðu þið sjatlið þetta, ég er ekki að fara að ávíta manninn eða áminna hann fyrir þetta, nú sjatlið þið þetta Sigríður [Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari], þið bara vinnið saman og hvernig þið finnið út úr þessu.“

Stefán sagðist sjálfur hafa getað leyst þetta með farsælum hætti. Hann hefði komið upp sérkaffistofu fyrir Helga Magnús „með baristaþjóni og öllu, það hefði kannski kostað 10 milljónir“.

Þess í stað hafi Þorbjörg Sigríður verið meðvirk með ríkissaksóknara og öðrum starfsmönnum embættisins og bolað Helga út.

Stefán hæðist einnig af stjórnarliðum fyrir að neita að mæta í hlaðvarp hans, Spursmál.

„Stjórnmálamenn sem þora ekki að mæta mér, illa upplýstum guðfræðingi öldum upp í Borgarnesi sem er reyndar ekkert atriði í þessu máli, eru einskis virði.“

Þjóðmálsmenn skutu ófáum skotum, mörgum föstum, á stjórnmálamenn á bjórkvöldinu en upptaka er aðgengileg á Spotify. Eftir að bjórkvöldið í mars komst í fréttir tilkynnti Stefán Einar að á þessum kvöldum sé um skemmtidagskrá að ræða með „galopalegum gálgahúmor sem kann vel að fara fyrir brjóstið á einhverjum“ en að hans mati er aðeins til ein dauðasynd – að vera leiðinlegur.

Sjá einnig: Stefán Einar svarar fyrir sig: „Fólk þarf ekki að mæta og það þarf ekki að hlusta”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“

Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara