Dómur féll í athyglisverðu máli í Héraðsdómi Reykjaness þann 25. júní en þar var afsal vegna fasteignar í Kópavogi ógilt þar sem seljanda eignarinnar hafði ekki verið áritað um samþykki maka. Málið er athyglisvert fyrir þær sakir að með ógildingu afsalsins situr kröfuhafi vegna veðlánaskuldar eftir með sárt ennið og sakar seljanda um lævísa fléttu til að losna undan tugmilljóna skuld.
Gandri Bergmann Skúlason (áður Guðmundur Andri) afsalaði fasteigninni til fyrirtækis sem kallast Factoring ehf. í apríl árið 2024. Það var eiginkona hans sem stefndi Factoring og Gandra í málinu til að fá afsalið ógilt. Gandri hefur komið víða við í samfélaginu og stofnaði meðal annars samtök lánþega árið 2009.
Málið varðar fasteign Gandra í Kópavogi en fyrirtæki hans, Procura home ehf. (Nú PH133 ehf) hafði tekið lán með veði í húsinu frá Factoring, en ekki staðið skil á afborgunum. Áhvílandi veðskuldir voru gjaldfallnar í janúar 2023 og hafði Factoring krafist nauðungarsölu á eigninni.
Nauðungarsalan átti að fara fram þann 4. apríl 2024. Gandri vildi koma í veg fyrir það, enda bjó fjölskylda hans í húsinu og gerði því samkomulag við Factoring. Hann myndi afsala eigninni til félagsins til greiðslu áhvílandi skulda og í staðinn myndi Factoring leyfa honum að leigja eignina á 400 þúsund krónur á mánuði. Factoring féllst á þetta og eigninni var afsalað á um 94,5 milljónir, sem var fjárhæð áhvílandi skulda.
Leigusamningur var gerður, nauðungarsalan afturkölluð og afsalinu þinglýst. Þar með var skuldin úr sögunni – eða það hélt Factoring að minnsta kosti svo þegar Procura Home varð gjaldþrota rúmum mánuði síðar lýsti Factoring ekki kröfum í búið.
Þá allt í einu kom á daginn að afsalinu var þinglýst án þess að vera áritað af eiginkonu Gandra, en fyrirsvarsmaður Factoring rakti fyrir dómi að það hefði láðst þar sem mikið gekk á þennan dag til að klára afsalið svo hægt væri að stöðva nauðungarsöluna.
Samkvæmt hjúskaparlögum ber maka að árita afsal um samþykki. Fór því svo að sýslumaður afmáði afsalið og vísaði til mistaka við þinglýsingu. Tveimur dögum eftir það þinglýsti Gandri tryggingabréfi á eignina fyrir 40 milljónir, þrátt fyrir að hafa sjálfur samið um að afsala eigninni upp í skuldir.
Factoring höfðaði mál til að freista þess að fá ákvörðun sýslumanns hnekkt, en héraðsdómur vísaði kröfunni frá. Eiginkona Gandra höfðaði svo mál gegn manni sínum og Factoring til að fá afsalið endanlega ógilt og sagðist ekki hafa haft hugmynd um að afsalið hefði verið gefið út.
Factoring sakaði Gandra um lævísa fléttu. Hjónin hefðu verið í fyrirtækjarekstri saman um árabil og komið nokkrum kennitölum í þrot. Þau hafi þar að auki rekið fasteignasölu. Þeim ætti því að vera vel kunnugt um hvernig fasteignaviðskipti ganga fyrir sig.
Eigninni hafi verið afsalað í apríl og leigusamningur gerður en leiga aldrei greidd eftir fyrsta mánuðinn. Factoring hafi því rift leigusamningi í september 2024 og sent útburðarbeiðni til héraðsdóms. Þá skyndilega hafi hjónin farið að bera fyrir sig afsalinu.
Eiginkonunni hafi verið vel kunnugt um áhvílandi skuldir og ekki getað verið ókunnugt um vanskilin, enda áralöng vanskil og margra mánaða nauðungarsöluferli. Nú hafi Factoring aflýst veðskuld sinni af eigninni og eins misst af tækifærinu að gera kröfu í þrotabú Procure home. Factoring taldi augljóst að hérna væru hjónin að reyna að koma sér undan sínum eigin skuldum, og það í vondri trú til að hagnast með ólögmætum hætti á kostnað Factoring. Það yrði bersýnilega ósanngjarnt að ógilda afsalið þar sem Factoring hefði þá í raun tapað 94,5 milljón króna kröfu.
Eiginkonan sagðist ekkert hafa vitað um þetta uppgjör. Hún hafi ekkert frétt fyrr en í maí 2024 þegar hún fékk bréf um að brunatrygging væri fallin úr gildi. Manni hennar hafi verið óheimilt að afsala eigninni án hennar samþykkis og komi það skýrt fram í lögum að í slíkum tilvikum sé hægt að krefjast ógildingar.
Dómari rakti að Gandri hafi verið þinglýstur eigandi eignarinnar og hann sé sannarlega giftur. Öðru hjóna er óheimilt án skriflegs samþykkis hins að afhenda eða veðsetja fasteign sem ætluð er til bústaðar fyrir fjölskylduna. Eiginkona Gandra áritaði ekki afsalið um samþykki og höfðaði ógildingarmál innan tilskilins frests.
Dómari rakti að sjálfskuldaraábyrgð Gandra vegna veðskuldarinnar standi enn, þó að skuldin sé ekki lengur tryggð með veði í fasteigninni. Því kunni Factoring að eiga bótakröfu á hendur Gandra. Factoring sé reynt í fjármögnun viðskiptakrafna og lánastarfsemi og þurfi að bera hallann af flumbrugangi við afsalsgerðina.
Fordæmisregla sé í íslenskum rétti að unnt sé að heimila riftun þó að sá sem kröfu gerir bjóði ekki jafnframt tiltekin skil af sinni hálfu.
Þar með féllst dómari á ógildingu og Factoring þarf að sætta sig við tugmilljóna tap eða freista þess að fá skuldir sínar greiddar með bótamáli eða á grundvelli sjálfsskuldaraábyrgðar Gandra.
Þetta er ekki fyrsta sinn sem Gandri er sakaður um brögð í viðskiptum, en árið 2017 var honum gert að endurgreiða þrotabúi 17 milljónir eftir að skiptastjóri lagði fram gögn um fjölmargar millifærslur Gandra inn á persónulega reikninga hans og eiginkonunnar.
Sjá einnig:Guðmundur Andri dæmdur til að endurgreiða 17 milljónir: