fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. júní 2025 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands hefur kært þrjá til lögreglu fyrir meint efnahagsbrot. Þau kærðu eru Sara Stef Hildardóttir, gjaldkeri Vorstjörnunnar, Védís Guðjónsdóttir, formaður Vorstjörnunnar, og Guðmundur Auðunsson, gjaldkeri kosningarstjórnar Sósíalistaflokksins.

Frá þessu greindi Sara Stef á spjallhópi sósíalista á Facebook í gærkvöldi. Ný stjórn flokksins hefur borið forvera sína þungum sökum og meðal annars sakað um að hafa tæmt sjóði flokksins. Sérstaklega hafa ásakanirnar beinst gegn fyrrum formanni framkvæmdastjórnar, Gunnari Smára Egilssyni.

Þá væru engin laun fyrir Gunnar og kærustuna

Stjórnarmaður nýrrar framkvæmdastjórnar, Guðbergur Egill Eyjólfsson, birti grein í gær þar sem hann fór yfir málið út frá hlið nýrrar stjórnar og beindi spjótum sínum sérstaklega að Samstöðinni.

„Ef ekki væri fyrir bein fjárútlát Sósíalistaflokksins til Samstöðvarinnar væri engin Samstöð og Gunnar Smári gæti hvorki greitt sér né kærustu sinni laun hjá Samstöðinni.“

Guðbergur er þeirrar skoðunar að Samstöðin sé fjölmiðill Sósíalistaflokksins, en Gunnar Smári hefur haldið því fram að miðillinn sé óháður.

„Flokkurinn hefur lagt yfir 30 milljónir til Samstöðvarinnar. Er þetta víkjandi lán sem Gunnar Smári hefur talað um að hægt sé að breyta í hlutafé. Hreinlegast væri þó ef stöðin á að vera alls ótengd flokknum að Samstöðin endurgreiði bara lánið.“

Bendir Guðbergur einnig á að Samstöðin hafi mikið reitt sig á sjálfboðavinnu sósíalista og að miðillinn sé hýstur í sama húsnæði og flokkurinn.

Meira en helmingur ríkisstyrks

Gerir Guðbergur svo athugasemdir við tvö félög sem hafa verið nátengd starfsemi flokksins og miðilsins, Alþýðufélagið og Vorstjörnuna, og heldur því fram að nýlega hafi Gunnar Smári staðið fyrir því að sýndarstjórn var kjörin í fyrrnefnda félaginu sem sér um rekstur Samstöðvarinnar.

„Helmingur af ríkisstyrk Sósíalistaflokksins hefur runnið beint til Samstöðvarinnar. Hinn helmingur ríkisstyrksins farið til Vorstjörnunnar.“

Gunnar Smári hafi stofnað Vorstjörnuna sem sér um að greiða húsaleigu fyrir húsnæði Sósíalistaflokksins í Bolholti og rukkað Samstöðina um leigu undir markaðsverði. Þar með hafi Samstöðin fengið meira en helming ríkisstyrks þar sem hinn helmingurinn hafi meðal annars niðurgreitt leigu miðilsins.

Guðbergur gerir eins athugasemd við eignarhald Gunnars Smára á spjallhópi flokksins á Facebook sem kallast Rauði þráðurinn. Eftir hallarbyltingu innan flokksins, þar sem Gunnari Smára var bolað út, hafi Gunnar þó tekið spjallið í burtu frá flokknum og lýst yfir að engin tengsl væru lengur milli Rauða þráðarins og Sósíalistaflokksins.

„Gunnar Smári átti sem sagt prívat og persónulega, opinberan spjallþráð flokksins.“

Nú ætlar Gunnar Smári að leika sama leik með Samstöðina – slíta öllum tengslum við flokkinn og kalla miðilinn óháðan þrátt fyrir að hann hefði aldrei orðið til nema fyrir tilstuðlan flokksins.

Eins ætli Gunnar Smári sér að hrifsa Vorstjörnuna frá flokknum. Guðbergur telur að með því að koma ríkisstyrkjunum til Samstöðvarinnar og Vorstjörnunnar hafi Gunnar Smári ætlað að tryggja það að ef hann missti völdin þá gæti hann „berstrípað flokkinn og byrjað upp á nýtt“ með eins konar kennitöluflakki.

Hvenær verður útförin auglýst?

Undanfarið hafi ný framkvæmdastjórn reynt að ná sáttum við forvera sína en í staðinn fengið sturlaðar kröfur á sig, svo sem að flokkurinn þurfi nú að greiða 930 þúsund krónur fyrir húsnæðið í Bolholti og að hækkunin taki gildi afturvirkt. Leiga var áður 217.500 kr. Einnig er farið fram á fjárgreiðslur og að flokkurinn rými Bolholtið fyrir 15. júlí.

„Afsökun Gunnars á yfirtöku Samstöðvarinnar er að nú sé komið til valda í Sósíalistaflokknum snargalið fólk sem vilji ekki breiða alþýðuhreyfingu. Valdasjúkt fólk sem vill ekki styðja við minnihlutahópa eða greiða fyrir aðkomu þeirra radda að Samstöðinni. Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt. Ekkert er fjarri sannleikanum.“

Guðbergur segir að stjórnartíð Gunnars Smára hafi einkennst af foryngjaræði þar sem allar gagnrýnisraddir voru kæfðar með „tuddaskap“. Guðbergur kallar fylgjendur Gunnars Smára, Smárakirkjuna, og nú hafi „æðsti presturinn“ komið þeim í svaðið eins og sjá megi á áðurnefndum kærum. Þetta hafi þessir þrír einstaklingar fengið á sig fyrir að vinna „skítaverkin“ fyrir Gunnar Smára.

„Á meðan stendur æðsti presturinn keikur og ósnertanlegur.“

Rauði þráðurinn logar þar sem meðlimir velta fyrir sér hvort að Sósíalistaflokkurinn sé hreinlega búinn að vera. Einn spyr hreinlega: „Hvenær verður útförin auglýst?“

Aðrir hafa gagnrýnt að kærum sé nú beint gegn fólki sem hefur unnið fyrir flokkinn í sjálfboðavinnu, en sjálfan Gunnar Smára sem þungi ávirðinga yfirtökuliðsins beinist gegn er þó ekki búið að kæra: „Hvaða eindæmis heigulsháttur er það?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Í gær

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“