Um 11 þúsund manns eru búsettir á Túvalú sem er um miðja vegu á milli Ástralíu og Havaí.
Þann 16. júní síðastliðinn opnuðu áströlsk yfirvöld umsóknarglugga fyrir íbúa Túvalú sem opinn verður í mánuð.
Í frétt CNN kemur fram að þessi gluggi hafi verið opnaður vegna þeirrar hættu sem steðjar að íbúum þessa fámenna ríkis á næstu árum vegna hækkandi yfirborðs sjávar. Hæsti hluti Túvalú stendur í aðeins sex metra hæð yfir sjávarmáli.
Nú þegar er ljóst að færri munu komast að en vilja því á tímabilinu júlí og fram í janúar næstkomandi verða 280 beiðnir samþykktar og verða þær valdar með slembiúrtaki. Þeir sem verða valdir munu fá búseturétt í Ástralíu ásamt réttindum til að stunda atvinnu. Þá munu þeir fá aðgang að opinberri heilbrigðisþjónustu og menntun.
Aðgerð yfirvalda á Túvalú og Ástralíu gengur nafninu Falepili-flutningsleiðin og segir Penny Wong, utanríkisráðherra Ástralíu, að markmið hennar sé að íbúar Túvalú fái tækifæri til að flytja burt með ákveðinni reisn. Þeir muni fá tækifæri til að vinna eða stunda nám og komast inn í ástralskt samfélag strax.
Feleti Teo, forsætisráðherra Túvalú, bendir á að íbúar Túvalú hafi fáa góða kosti og ekki sé mögulegt fyrir íbúa að færa sig til innanlands. „Við höfum ekki val um að flytja upp á hærra land því það er ekki til staðar,“ segir hann.
Áætlun Ástralíu og Túvalú er hluti af samkomulagi sem undirritað var árið 2023 sem skuldbindur Ástralíu til að verja Túvalú, bæði hernaðarlega og gegn hækkandi yfirborði sjávar. Eyríkið tilkall til um 900 þúsund ferkílómetra svæðis í Suður-Kyrrahafi og er álitið mikilvægt í baráttu Ástralíu við Kínverja um yfirráð á svæðinu.
Á loftslagsráðstefnunni COP27, sem haldin var í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi árið 2022, tilkynntu yfirvöld í Túvalú að þau ætluðu sér að verða fyrsta þjóðin í heiminum til að flytjast alfarið á netið. Hafa yfirvöld síðan þróað áætlun um að öll stjórnsýsla fari yfir í stafrænt form og saga og menning landsins verði varðveitt á stafrænan hátt. Mun þetta fela í sér að Túvalú verður áfram til sem ríki, jafnvel þótt land þess verði óbyggilegt.
Hafa áströlsk yfirvöld nú viðurkennt „stafrænt fullveldi“ Túvalú og er vonast til þess að þjóðin haldi sjálfsmynd sinni og geti áfram starfað sem ríki eftir að landið hverfur.