fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Fréttir

Sæþór hefur kært umdeildu kynferðislegu skjáskotin til lögreglu

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 29. maí 2025 09:00

Sæþór Benjamín Randalsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæþór Benjamín Randalsson, nýr formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, hefur kært dreifingu skjáskota, þar sem gefið er í skyn að hann sé að falast eftir kynferðislegum myndum af ólögráða pilti, til lögreglu. Þetta staðfestir Sæþór í skriflegu svari til DV en kæruna lagði hann fram í gær. Hefur Sæþór fullyrt að um fölsuð skjáskot sé að ræða.

Þá segir hann það misskilning hjá blaðamanni Nútímans, sem fyrst greindi frá málinu, að skjáskotin hefðu verið notuð til þess að kúga hann um fé.

Snerist hugur og ákvað að kæra

Enginn reyndi að kúga mig. Það var einhver ruglingur hjá blaðamanni Nútímans. Ég sagði að ég hefði heyrt af öðrum sem hafa verið kúgaðir á netinu eða að aðrir hafi notað myndir sínar sem þykist vera þeir,“ segir Sæþór og fullyrðir að hann hafi fyrst séð skjáskotin fyrr í þessari viku, eftir aðalfund Sósíalistaflokksins þar sem hann og samherjar hans veltu ríkjandi forystu flokksins úr sessi. Í áðurnefndri frétt Nútímans var haft eftir honum að hann hyggðist ekki kæra dreifingu skjáskotanna en síðan virðist honum hafa snúist hugur.

DV greindi frá málinu síðastliðinn þriðjudag en umrædd skjáskot voru þá í nokkurri dreifingu. Í þeim mátti sjá meint kynferðislegt spjall Sæþórs við unglingspilts á stefnumótaforritinu Grindr, sem ætlað er samkynhneigðum karlmönnum. Aðspurður um aldur segist pilturinn vera 16 ára, en þrátt fyrir það virðist sem Sæþór haldi spjallinu áfram með ágenghum hætti og biður piltinn um kynferðislegar myndir.

Sæþór hefur fullyrt að skjáskotin séu fölsuð og segir það afar auðvelt. Til að sýna fram á það sendi hann skjáskot tilbaka sem sýndu blaðamann DV í slíku spjallli við unglinginn.

Ennfremur sagði Sæþór að tímasetningin á dreifingu skjáskotanna væri engin tilviljun, svo skömmu eftir átakamikinn aðalfund. Um væri að ræða tilraun til að rústa mannorði hans og koma á hann höggi.

„Ég sá þær fyrst í þessari viku“

Samkvæmt heimildum DV birtust umrædd skjáskot fyrst í umdeildum Telegram-hópi sem hefur komið nokkuð við sögu í fréttum undanfarið, en um er að ræða tálbeituhóp ungmenna sem segjast berjast gegn barnaníði. Aðspurður um skoðun sína á því að skjáskotin hefðu birst þegar Sæþór gegndi engri valdastöðu hjá sósíalistum sagðist hann ekki hafa neinar skýringar á því.

„Ég veit ekki hvenær myndirnar voru teknar. Ég sá þær fyrst í þessari viku,“ segir Sæþór.

Þá fékk DV ábendingar um nokkuð óvenjulega heimasíðu sem Sæþór heldur úti og auglýsir á Facebook-síðu sinni. Ber hún yfirskriftina „Poop in my mouth“ eða Skíttu í munninn á mér. 

„Hægt er að heimsækja umrædda vefsíðu og hún er 3D eignasafn mitt frá því ég vann í tölvuleikjum. Það var búið til árið 2001 þegar ég var 19 ára og mjög óþroskaður og fannst það fyndið og eftirminnilegt. Það er líka notandanafnið sem ég notaði í mörg ár á netspjallsíðum,“ segir Sæþór.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir
Fréttir
Í gær

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður
Fréttir
Í gær

Rússar eru að safna liði við „virkisborg“ Úkraínu

Rússar eru að safna liði við „virkisborg“ Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stríðið hefur breyst – „Þetta er nú 20-25% af árásum Rússa“ – Myndband

Stríðið hefur breyst – „Þetta er nú 20-25% af árásum Rússa“ – Myndband
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krafist atvinnurekstrarbanns yfir gjaldþrotakóngi – Slóð gjaldþrota eftir Ásgeir sem sakaður er um kennitöluflakk

Krafist atvinnurekstrarbanns yfir gjaldþrotakóngi – Slóð gjaldþrota eftir Ásgeir sem sakaður er um kennitöluflakk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ökumaður á Akureyri mældist með alkóhól í útblæstri eftir að hafa borðað súrdeigsbrauð – „Ég hef aldrei drukkið“

Ökumaður á Akureyri mældist með alkóhól í útblæstri eftir að hafa borðað súrdeigsbrauð – „Ég hef aldrei drukkið“