Þann 26. maí árið 2019 var jeppa tekið utan í níu ára stúlku á reiðhjóli á götu í Reykjavík. Auk þess að fá högg frá bílnum hentist stúlkan margra metra og skall á malbikinu. Þetta leit hræðilega út og þó að afleiðingar af slysinu séu langvarandi fyrir stúlkuna, sem er 15 ára í dag, hefur hún þó verið á miklum batavegi síðan atvikið varð. Móðir hennar og móðursystir þakka rétt stilltum hjólreiðahjálmi að stúlkan er á lífi í dag og á góða framtíð í vændum.
Andrea Bergmann Halldórsdóttir, móðursystir stúlkunnar, sem heitir Sara, skrifar áhrifamikinn pistil um atvikið á Facebook. Þar rifjar hún upp að móðir stúlkunnar lagaði til hjálminn á henni í þann veginn sem stúlkan var að rjúka út úr húsi. Örstuttu síðar var ekið á barnið. Við gefum Andreu orðið:
„Í gær voru 6 ár frá því að Saran okkar slasaðist lífshættulega. Börnin mín sögðu alltaf að þau þurftu ekki lítið systkini, því við ættum Söru. Þennan dag misstum við næstum molann okkar. Hún er ótrúlega sterk, mikill baráttujaxl og gerir allt sem hún getur til að láta þetta ekki stoppa sig. Hún er búin að fara í fjölda aðgerða, endurhæfingu, sjúkraþjálfun en þetta mun há henni út lífið. Hún missti snerpu, upplifir reglulega verki í mjöðm, hné, baki og fær höfuðverki sem hún fékk ekki áður. Við sjáum breytingar á göngulagi og hvernig hún bítur á jaxlinn þegar hún er orðin þreytt.
En hún er hérna hjá okkur og þó líkaminn hafi skaddast þá er hugurinn heill. Hún er sami glaði stríðnispúkinn, atorkumikla stelpan sem hefur metnað í námi, leik og starfi. Hún hefur þroskast heilmikið við þetta mótlæti og sýnt styrk og baráttþrek sem er ótrúlegt að svona ungur einstaklingur hafi. Hún er ennþá Saran okkar og það er ekki sjálfgefið eftir svona alvarlegt slys.
Þennan örlagaríka dag vorum við Barbara í gæsun. Ég er í ganginum heima hjá henni og við að fara að leggja af stað. Sara er á leiðinni út að hjóla með vinkonum sínum á sama tíma. Þegar Sara nánast hleypur framhjá okkur, tók systir mín eftir því að hjálmurinn var eitthvað laus. Hún grípur í Söru, stoppar hana og stillir hjálminn aftur. Þetta var nýr hjálmur en þetta var fyrsta skipti sem hún notaði hann án þess að vera með buff innan undir, svo hann var of laus. Ég er búin að sjá þetta atvik svo oft í huganum. Búin að eiga martraðir þar sem hún hleypur framhjá henni án þess að nokkuð sé gert.
Aðeins nokkrum tímum seinna keyrir jeppi á Söru þar sem hún er að hjóla. Hún fær ekki eingöngu högg frá bílnum, heldur hendist hún marga metra og skellur á malbik. Viðbragðsaðilar og læknir á bráðamóttökusegja allir að án hjálmsins hefði Sara okkar ekki átt mikla möguleika á að lifa slysið af. Viðbragðsaðilar töluðu um að hjálmurinn hefði enn verið á höfðinu og setið fullkomlega á henni þegar þeir komu á vettvang og þeir telji að það hafi bjargað lífi hennar.
Eftir risastóra og langa aðgerð var Söru haldið sofandi á gjörgæslu í nokkurn tíma. Til að bregðast við bólgum í heila o.fl.“
Það fellur Andreu þungt að sjá börn hjálmlaus á reiðhjóli þegar haft er í huga að hjálmurinn skipti sköpum þegar Sara litla lenti í slysinu. Hún hvetur forráðamenn barna til að gefa engan afslátt af öryggi hvað þetta varðar.
„Þess vegna brýtur það hjarta mitt að sjá hversu mörg börn eru að fara hjálmlaus í skóla/leikskóla eða út að leika. Mér finnst líka erfitt að sjá hversu mörg eru með illa stillta eða hreinlega lausa hjálma á höfðinu.
Þetta er mér hjartans mál ekki gefa afslátt af öryggi. Saran mín væri ekki dásamleg að verða 15 ára gelgja að klára 9.bekk með stæl ef mamma hennar hefði gefið afslátt af öryggi.
Svo elsku foreldrar og forráðamenn stilliði hjálmana rétt.“
Hún vísar jafnframt í upplýsingar frá Miðstöð slysavarna barna um mikilvæg öryggisatriði varðanid reiðhjólahjálma.
DV ræddi stuttlega við móður Söru, Barböru Dröfn Fischer, sem þrátt fyrir allt horfir á málið björtum augum: „Hún er samt heil og gengur og hleypur, og gerir allt sem unglingar gera í dag.“
Barbara segir að lýsingar Andreu, systur hennar, á atvikum séu í senn dramatískar og sannar. Þetta var sannarlega atburður sem skók ástvini litlu stúlkunnar sem þarna var hætt komin.
Barbara segir jafnframt að miklar framfarir hafi orðið hjá Söru þó að fullum bara sé ekki náð. Við mikið álag og fjör með vinum finni hún enn til og sé hölt. Barbara hefur þessi skilaboð að færa öllum foreldrum:
„Allir foreldrar passið upp á hjálminn hjá börnunum ykkar, kennið þeim að stilla hann rétt á höfuðið og ekki spara við kaup á hjálmi. Hann getur bjargað lífi barna ykkar líkt og hann gerði hjá Söru !! Þessum 10 sekúndum þegar ég lagaði hjálminn á Söru þegar hún fór út í hádeginu þennan örlagaríka dag mun ég aldrei gleyma og er þakklát fyrir að eilífu.“