fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Fréttir

PCMag velur bestu tölvuskjáina 2025

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. desember 2025 15:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tækniritið PCMAG hefur valið HP Series 7 Pro, sem er 34“  sveigður skjár með myndavél, besta skrifstofuskjáinn árið 2025. Mælt er með honum sérstaklega fyrir skrifstofuvinnu og fjarfundi. Þar segir að skjárinn sameini góð myndgæði, öfluga myndfundatækni og fjölbreytta tengimöguleika. Þá segir PCMag að skjárinn sé alhliða vinnustöð fyrir nútíma skrifstofu.

Einnig var HP E45c, 45″ skjár, valinn besti ofurbreiði skjárinn. PCMag segir að hann sé frábær staðgengill fyrir tvo aðskilda QHD skjái. Hann sé með flotta litaframsetningu ásamt snjöllum leiðum til að skipta skjánum í tvo hluta eða fleiri.

13MP myndavélin með gervigreind

„HP Series Pro 7 línan er búin að slá í gegn frá því hún kom á markað á síðasta ári. Góð gæði bæði í skjánum og myndavélum, sem eru innbyggðar. Það kemur mér ekkert á óvart að skjárinn hafi hlotið nafnbótina besti skrifstofuskjárinn. Skjárinn er með innbyggðri dokku sem gerir það að verkum að notandinn geti tengt fartölvuna með einum kapli og fengið hljóð- og myndstraum og hlaðið tölvuna í leiðinni,“ segir Trausti Eiríksson vörustjóri PC hjá tæknifyrirtækinu OK sem er umboðsaðili HP á Íslandi.

„Hægt er að fá þessa skjái með allt að 13MP myndavél með innbyggðri gervigreind til að bæta upplifun af fjarfundum til muna. Hljóðnemarnir á skjánum eru einnig góðir og draga úr utanaðkomandi hávaða sem annars myndi sendist yfir til annara fjarfundagesta. E45c sem fékk verðlaun sem besti ofurbreiði skjárinn er einnig til á lager en ný og uppfærð útgáfa af honum er væntanleg snemma á næsta ári.“

90% af plastinu endurunnið

Trausti segir að sjálfbærni sé stór þáttur í hönnun HP skjáa.  „HP vinnur markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum með endurvinnanlegum umbúðum og notkun á endurvinnanlegu efnum í framleiðslu. Til dæmis er allt að 90% plasts í HP Series 7 Pro skjánum endurunnið og allar umbúðir eru endurvinnanlegar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

„Þetta er alveg skelfilegur hræðsluáróður sem stenst enga skoðun“

„Þetta er alveg skelfilegur hræðsluáróður sem stenst enga skoðun“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Orð Egils vekja kátínu – „Telst þá ekki vera hæð – eða hvað?“

Orð Egils vekja kátínu – „Telst þá ekki vera hæð – eða hvað?“