fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025
Fréttir

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. nóvember 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Höskuldsson hefur búið í Bergen í sextán ár, en hann flutti þangað fimmtugur eftir erfiðan tíma heima á Íslandi. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær sagði hann frá því hvernig lífið hefur tekið stakkaskiptum eftir flutninginn – og hvers vegna hann telur sig búa við meiri fjárhagslegan stöðugleika í Noregi. „Við eigum pening um hver mánaðamót. Þegar búið er að gera upp allt eigum við pening sem við getum lagt til hliðar,“ sagði Páll í viðtalinu.

Tilefni samtalsins var umræða um verðlag, vaxtastig og lífsgæði á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Páll rifjaði upp að hann hafi flutt til Noregs þegar hann fann þörf fyrir nýtt upphaf. Hann hafði þá verið edrú í þrjú ár, gengið í gegnum gjaldþrot og var, eins og hann sagði sjálfur, orðinn „leiður“ á lífinu hér heima. Þá bauðst honum starf hjá fyrirtækinu Tide, sem rekur meðal annars strætisvagna í Bergen eftir að forsvarsmenn fyrirtækisins komu til Íslands í leit að starfsfólki. Þar sem hann var nýbúinn að taka meiraprófið ákvað hann að slá til þegar honum bauðst starfið.

Fór út með eina ferðatösku

„Ég fór þarna fimmtugur, á miðjum aldri, með eina ferðatösku og þurfti að byrja upp á nýtt,“ segir hann en Páll fór einn út. Hann byrjaði strax að vinna mikið og fann það að þessi vinna passaði honum vel. Í dag er Páll giftur, hefur verið edrú í 19 ár, og eiga hann og eiginkona hans 12 ára son, en Páll á einnig börn og barnabörn sem búsett eru á Íslandi.

„Ég ætla ekkert að lýsa fyrsta húsnæðinu sem ég bjó í, ég var kominn í verbúðina aftur en ég lét það ekkert stoppa mig. Svo kynntist ég konunni minni, við vorum á leigumarkaði fyrstu árin okkar og náðum svo að kaupa okkur íbúð fyrir 4 árum.“

Heimir Karlsson, þáttastjórnandi Bítisins, skaut þá inn í að sumum finnist erfitt að draga fram lífið á Íslandi. Hér sé margt dýrt; matur, tryggingar, vextir. „Hvernig er þetta í Noregi,“ spurði hann síðan.

„Ég hef verið upptekinn af því að halda stíft heimilisbókhald, ég hef samanburð,“ sagði hann og bætti við að vextirnir af óverðtryggðu húsnæðisláni hans til 30 ára væru á milli 4 og 5 prósent.

Fjórðungur fer í húsnæðisliðinn

Hann tók fram að þau hjónin væru bæði verkafólk, hann strætisvagnabílstjóri og konan hans ynni við ræstingar á flugvellinum í Bergen. Eftir að búið er að borga alla skatta af launum þá sé húsnæðisliðurinn 25% af ráðstöfunartekjum þeirra hjóna. Þau búa í 14 hæða háhýsi í Bergen þar sem þau borga í sameiginlegan sjóð fyrir ýmsum útgjöldum. Þegar allt sé tekið til þá nemi húsnæðiskostnaður fjórðungi af ráðstöfunartekjum.

Páll nefndi að meðalvextir af húsnæðislánum í Noregi í dag séu um 5,5 til 6,0%, en líkt og víða annars staðar hafa stýrivextir hækkað í Noregi og eru þeir 4% núna, að sögn Páls.

Noregur hefur haft það orð á sér að vera dýr en hann segir að þau þrjú sem eru í heimili fari með um 10 þúsund norskar krónur í mat á mánuði, eða um 125 þúsund íslenskar krónur miðað við gengið í gærmorgun. Páll keyrir um á rafmagnsbíl sem hann hleður í „mjúkri hleðslu“ yfir nóttina og kostar það hann um tíu þúsund krónur á mánuði.

Aðspurður hvort lífið sé léttara í Noregi en á Íslandi svaraði Páll því til að þau hjónin ættu að minnsta kosti pening í afgang um hver mánaðamót sem þau geta lagt til hliðar – nokkuð sem vart telst sjálfsagt á Íslandi í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð
Fréttir
Í gær

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka