fbpx
Miðvikudagur 19.nóvember 2025
Fréttir

Rúnar í Glerborg fékk risasekt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025 17:00

Megna ehf. hét áður Glerborg en nafnið og hluti starfseminnar var selt til Íspan í febrúar 2021.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir daglegir stjórnendur fyrirtækisins Megna ehf voru ákærðir fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum, fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts fyrir hluta rekstraráranna 2020 og 2021, samtals rúmlega 45 milljónir króna, og fyrir að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir hluta sömu ára, sem nemur um 52 milljónum króna hjá hvorum aðila.

Dómur hefur verið kveðinn upp í málinu Héraðsdómi Reykjavíkur.

Megna varð gjaldþrota árið 2022 og námu lýstar kröfur í þrotabúið tæplega 428 milljónum króna. Að frádregnum skiptakostnaði var ráðstafað upp í lýstar sértökukröfur kr. 4.697.392, upp í búskröfur kr. 14.594.475 og upp í veðkröfur kr. 26.356.523. Samtals nam úthlutun kr. 45.648.390 eða 10,68% af lýstum kröfum.

Megna hét áður Glerborg en í febrúar 2021, ári fyrir gjaldþrotið, seldi fyrirtækið gler- og speglastarfsemi sína auk vörumerkisins yfir til Íspan og tók upp nafnið Megna. Var ætlunin að einbeita sér að sértækari þjónustu, til að mynda gluggalausnum fyrir verktaka. Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Megna, sagði Covid-19 faraldurinn vega meginástæðu fyrir gjaldþrotinu, eins og DV greindi frá á sínum tíma:

„Tap á rekstr­in­um er margþætt. Covid-19 hægði á öllu í lang­an tíma eins og flest­um er ljóst. Covid-19 hægði og/​eða stoppaði fram­leiðslu okk­ar, sama gilti um flutn­ing til lands­ins. Mikl­ar taf­ir kosta mikla pen­inga. Mikl­ar og óvænt­ar er­lend­ar kostnaðar­verðshækk­an­ir eru ein af­leiðing­in til viðbót­ar. Vog­un tap­ar, launa­hækk­an­irn­ar miklu höfðu nei­kvæð áhrif og munu gera til lengri tíma. Allt þetta tek­ur í,“ sagði Rúnar í viðtali við Morgunblaðið.

Annar stjórnandinn sýknaður

Báðir mennirnir neituðu sök en hinn sakborningurinn vísaði á Rúnar um ábyrgð á daglegum rekstri og fjármálastjórn Megna ehf, sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hafi hann borið ábyrgð á skilum á innheimtum virðisaukaskagtti og afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda. Rúnar lýsti hins vegar alfarið sömu ábyrgð á hendur samstarfsmanni sínum.

Samstarfsmaðurinn greindi frá því að helstu verkefni hans hafi falist í því að halda utan um færslu bókhalds, greiðslu launa, gerð greiðsluáætlana og innheimtur. Einnig hafi hann séð um skil á virðisaukaskattsskýrslum og skilagreinum vegna staðgreiðslu og greiðslu þeirra gjalda til ríkissjóðs. Sagði hann að Rúnar hefði tekið ákvarðanir um allar stærri greiðslur, þar á meðal skattskil.

Dómari taldi út frá fyrirliggjandi gögnum í málinu erfitt að slá því föstu hver hafi verið raunveruleg aðkoma samstarfsmannsins að skattskilum Megna ehf og hver hafi verið eiginleg verkaskipting milli hans, Rúnars og stjórnarfélagsins. Var samstarsfmaðurinn látinn njóta vafans og sýknaður.

Ábyrgð Rúnars taldist hins vegar fullsönnuð og var hann sakfelldur fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri félagsins.

Var hann dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu rúmlega 156 milljóna króna sektar í ríkisstjóðs.

Ítarlegan dóm í málinu mál lesa hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rekstur veitingastaðar Tamilu og Jónsa endaði með ósköpum – Ásakanir um þjófnað, fals, meiðyrði, hótanir og ýjað að hjúskaparbroti

Rekstur veitingastaðar Tamilu og Jónsa endaði með ósköpum – Ásakanir um þjófnað, fals, meiðyrði, hótanir og ýjað að hjúskaparbroti
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“