fbpx
Miðvikudagur 19.nóvember 2025
Fréttir

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni í þrjú ár – Barnið var á aldrinum tveggja til fimm ára

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025 11:00

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa í ótilgreindan fjölda skipta frá árinu 2020 fram til 2023 framið kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var á aldrinum 2ja til 5 ára.

Í ákæru Héraðssaksóknara sem DV hefur undir höndum hafa verið afmáðar upplýsingar um tengsl barnsins og hins ákærða en af samhengi má leiða líkur að því að um föður eða stjúpföður sé að ræða, þó er ekki hægt að fullyrða um það.

Í ákæru segir að ákærði hafi misnotað freklega yfirburðarstöðu sína gegn barninu, traust hennar og trúnað. Hann hafi endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð stúlkunnar með því að snerta kynfæri hennar með fingrum sínum og hafa við hana önnur kynferðismök en samræði með því að setja fingur inn í leggöng hennar.

Var með barnaníðsefni

Maðurinn er einnig ákærður fyrir vörslu barnaníðsefnis en við húsleit lagði lögregla hald á fartölvur og minnslykla. Fundust á þessum tækjum hundruð ljósmynda og kvikmynda sem sýna börn nakin og á kynferðislegan hátt.

Fyrir hönd barnsins er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð fjórar milljónir króna.

Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur 1. desember. Réttarhöld í málinu eru lokuð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Óðu grímuklæddir inn í herbergi á Akureyri og skelfdu mann sem var að gefa ketti

Óðu grímuklæddir inn í herbergi á Akureyri og skelfdu mann sem var að gefa ketti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stefán Einar tjáir sig um arabísku mennina – „Hrein og klár ögrun við íslenskt samfélag“

Stefán Einar tjáir sig um arabísku mennina – „Hrein og klár ögrun við íslenskt samfélag“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump hvetur til afhjúpunar á öllum Epstein-skjölum – Segist hafa ekkert að fela

Trump hvetur til afhjúpunar á öllum Epstein-skjölum – Segist hafa ekkert að fela
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýna orðræðu Miðflokksins og benda á hvaðan innflytjendur á Íslandi koma – „Hef enga trú á að Íslendingar láti blekkja sig“

Gagnrýna orðræðu Miðflokksins og benda á hvaðan innflytjendur á Íslandi koma – „Hef enga trú á að Íslendingar láti blekkja sig“