fbpx
Mánudagur 20.október 2025
Fréttir

Þorgerður varð hugsi yfir skilti Baldvins – „Íslenskt hugrekki í hnotskurn“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. október 2025 12:00

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, segir skilti á Höfn í Hornafirði hafa vakið hana til umhugsunar um anda íslensks samfélags og hvað það er sem skiptir raunverulega máli.

Í grein sinni rekur Þorgerður nýlega heimsókn þingflokks Viðreisnar til Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Segir hún fundinn hafa verið góðan og þar hafi verið rætt var um verkefni, áskoranir og framtíð björgunarsveitanna. 

„En það sem eftir stendur í huganum er ein lítil saga og eitt skilti. Sjálfboðaliðar víðs vegar um landið þurfa að stökkva til þegar neyðarástand skapast. Stundum á vinnutíma þegar þeir eru önnum kafnir. Þeirra á meðal er Baldvin rakari á Höfn í Hornafirði. Í hvert skipti sem hann fær útkall frá björgunarsveitinni leggur hann niður skærin, læsir dyrunum og setur út í gluggann skilti sem á stendur: „Fór í útkall.“

Það er eitthvað við þessa einföldu setningu sem nær beint til manns. Hún fangar kjarna þess sem skiptir raunverulega máli hugrekki, samstöðu og ábyrgð gagnvart öðrum.“

Segir Þorgerður þetta vera andann sem býr í Slysavarnafélaginu  Landsbjörgu. 

„Og það er þessi andi sem Viðreisn vill sjá ríkjandi í íslensku samfélagi: að við stöndum saman þegar á reynir, hvort sem er í náttúruhamförum eða í pólitík.“

Öryggi Íslands byrjar heima

Þorgerður segir að þegar talað er um öryggi og varnir hugsum við iðulega um stóru sviðin: NATO, alþjóðasamstarf og varnarsamninga. En í raun byrji öryggi Íslands heima. 

„Það byrjar í samfélagi þar sem fólk er tilbúið að leggja sitt af mörkum. Fara út í myrkrið til að leita týndra ferðamanna. Aðstoða fólkið okkar í vanda. Þessi samstaða skapar öruggara og betra samfélag.“

Þorgerður rekur að Utanríkisráðuneytið leggi sitt af mörkum til að styðja þetta starf, til dæmis með því að fjármagna þjálfun í rústabjörgun og styrkja alþjóðlegt samstarf á sviði neyðarviðbragða. 

„Því varnarmál í íslensku samhengi snúast meðal annars um það að efla getu okkar til að bregðast við, vernda eigið samfélag og vera hluti af stærri heild þegar á reynir.“

Fólkið sem heldur landinu saman

Utanríkisráðherra segir það ekki ógnarstefnu að vilja frið og öryggi, það sé einfaldlega ábyrgt og því verðum við að verja friðinn. 

„Rétt eins og við eigum slökkvitæki heima hjá okkur, eigum við líka að vera viðbúin sem þjóð. Það er ekki til marks um ótta, heldur um fyrirhyggju og umhyggju fyrir fólkinu í landinu.

Viðreisn hefur alltaf lagt áherslu á alþjóðlega samvinnu en ekki síður að við hugum vel að því sem við eigum hér heima. Og við eigum að standa með fólkinu sem stendur vaktina. Hvort sem það er í björgunarsveitunum, í Landhelgisgæslunni, lögreglunni, heilbrigðiskerfinu eða í alþjóðastarfi þar sem íslenskir sérfræðingar vinna að því sama: að bjarga lífum og verja friðinn.“

Takk fyrir útkallið

„Þegar ég hugsa til Baldvins rakara og skiltisins hans hugsa ég líka til þess hvernig við öll getum lagt okkar af mörkum. Sum okkar fara í útkall í roki og rigningu, önnur í þingsal, ráðuneyti eða í atvinnulífinu, en markmiðið er það sama: að gera sitt besta fyrir land og þjóð.“

Þorgerður endar grein sína á að þakka fyrir fyrir hönd þingflokks Viðreisnar.

„Takk til allra ykkar sem hafið farið í útkall. Hvort sem það var á fjöll eða sjó. Í sól eða snjó.

Þið gerið það ekki til að fá klapp á bakið fyrir, heldur vegna þess að þið vitið að það skiptir máli. Það er sú hugsun sem ég vil að leiði okkur áfram. Í björgunarstörfum, í stjórnmálum, í atvinnulífinu og í samfélaginu öllu.

Að standa upp þegar kallað er. Að mæta þegar á reynir. Það er ábyrg forysta. Og það er íslenskt hugrekki í hnotskurn.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Réttarhöld að hefjast yfir þremur mönnum sem sakaðir eru um að kveikja í Teslu-bíl lögreglukonu

Réttarhöld að hefjast yfir þremur mönnum sem sakaðir eru um að kveikja í Teslu-bíl lögreglukonu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Íslendingar þurfa aðeins að fara að hysja upp um sig buxurnar hvað varðar mannasiði“

„Íslendingar þurfa aðeins að fara að hysja upp um sig buxurnar hvað varðar mannasiði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður sem hlaut fimm ára dóm fyrir kynferðisbrot starfaði á Heimildinni og var handtekinn þar

Maður sem hlaut fimm ára dóm fyrir kynferðisbrot starfaði á Heimildinni og var handtekinn þar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eldri maður sagður hafa áreitt unglingsstúlku við Engihjalla – Reyndi að komast inn í bíl hennar

Eldri maður sagður hafa áreitt unglingsstúlku við Engihjalla – Reyndi að komast inn í bíl hennar