fbpx
Miðvikudagur 15.október 2025
Fréttir

Kristján missti föður sinn 15 ára og grét ekki við jarðarför hans – „Það er engin handbók við áföllum“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 15. október 2025 08:00

Kristján Hafþórsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Hafþórsson, fyrirlesari, hlaðvarpsstjórnandi og meistaranemi við Háskóla Íslands, segir okkur öll þurfa að tala meira saman. Sjálfur þekki hann það manna best að taka ekki nóg, en eftir að hafa misst föður sinn aðeins 15 ára gamall ákvað Kristján að vera sterkur. Hann segir að þar hefði hann betur talað og sagt frá líðan sinni á þessum tíma.

„Ég missti föður minn úr sjálfsvígi þegar ég var 15 ára gamall árið 2007 og er það mitt stærsta áfall. Þegar fráfall föður míns átti sér stað ákvað ég strax að vera sterkur. Ég er mjög stoltur af þeirri staðreynd að sem 15 ára gamall gaur ákvað ég að sjá glas lífsins hálffullt og ég ætlaði ekki að láta þetta einkenna mig að eilífu. Falleg hugsun og mjög þroskað af 15 ára manneskju. Það sem ég hins vegar flaskaði á var að opna ekki á mér munninn og segja hvernig mér raunverulega leið á þeim tíma. Ég grét ekki einu sinni í jarðarförinni hans því ég ætlaði að vera svo sterkur fyrir alla aðra og sýna fordæmi þar. Það voru auðvitað mikil mistök sem ég áttaði mig á seinna en það er erfitt að greina þetta þar sem enginn les hugsanir. Auðvitað átti ég að leyfa tilfinningunum að flæða en það er auðvelt að vera vitur eftir á.“

Í grein sinni segist Kristján almennt talinn mjög jákvæður og hress að eðlisfari og er hann ánægður með það. Hann hafi ekki verið eins opinn þegar hann var barn og unglingur eins og hann er í dag. 

„Við erum öll mismunandi og getum mótast í þá manneskju sem við erum í dag út frá alls konar aðstæðum og áskorunum.“

Kristján segist sem unglingur ekki hafa áttað sig á eða vitað hvernig hann ætti að tjá sig á þann hátt sem hentaði honum best og það hafi allir verið að gera sitt besta í mjög erfiðum aðstæðum.

„Það er engin handbók við áföllum. Það er ekki hægt að fletta upp í bók og finna kaflann um hvernig maður á að tækla dauðsfall náins ættingja með undirkaflanum sem segir að þetta hafi verið sjálfsvíg. Ég á frábært bakland og er heppinn. Við verðum að opna á okkur munninn og tala saman um hvernig okkur líður, sama hversu mikið við skömmumst okkar fyrir líðan okkar og hugsanir.“

Kristján bætir við að við eigum ekki að skammast okkar fyrir líðan og hugsanir, sjálfur hafi hann þó gert það lengi sem unglingur.

„Ég skammaðist mín lengi fyrir það hvernig mér leið í kjölfar áfallsins, fyrir hugsanir mínar, fyrir það að vera strákurinn sem missti pabba sinn á þennan hátt og fleira til. Ég myndaði með mér þráhyggjur, kvíða, áhyggjur og alls konar sem svona áföllum fylgir. Ef einhver spurði mig á þessum tíma hvernig mér leið svaraði ég nánast alltaf að mér liði nú bara nokkuð vel og væri bara góður. Jákvæður og góður á því. Staðan var alls ekki alltaf þannig. Ég þorði ekki að segja hvernig mér leið. Mundu kæri lesandi að skammast þín ekki fyrir hvernig þér líður og fyrir það sem þú hugsar. Við erum öll mismunandi og það að byrja að tjá sig varðandi hvernig manni líður, þó það sé ekki nema ein setning til þess að byrja með getur gert kraftaverk. Ég er lifandi dæmi þess.“

Segir Kristján líðan hans hafa orðið betri eftir að hann fór að tala um hlutina, það hafi þó tekið tíma. „Öll höfum við okkar hátt á hlutunum en númer 1, 2 og 3 er að skammast sín ekki fyrir hvernig manni líður, hvað maður er að hugsa og byrja jafnt og þétt að tjá sig og tala við fólk sem maður treystir. Það gerir í alvörunni kraftaverk! Þetta áfall mitt hefur móta mig í manninn sem ég er í dag og ég get stoltur sagt að ég myndi ekki vilja skipta Krissa í dag út fyrir nokkuð annað, þrátt fyrir áfallið.“

Hann segist vissulega vilja að faðir hans væri á lífi og afi barnanna sinna, í dag væru þeir feðgar líklega bestu vinir. 

„Mitt tilfelli sannar hins vegar að sama hversu dimmur dalurinn er og engin von sé í sjónmáli þá getur þessi ömurlega raun manns orðið til þess að maður verður besta útgáfan af manni sjálfum eða útgáfa sem manni óraði ekki um að geta orðið. Lykilatriðið þarna er að halda í vonina sama hvað og reyna að sjá glas lífsins hálffullt. Punkturinn er sá að það er alltaf hægt að taka eitthvað jákvætt úr öllu, hvort sem það er breytt lífssýn eða hvað sem er. Lífið er oft á tíðum erfitt og virðast hlutirnir stundum óyfirstíganlegir. Haltu í vonina, þetta verður allt í lagi!“

Kristján segir jákvæðni vera að þora að vera maður sjálfur, sem er eitt mesta hugrekki sem hægt er að finna hjá sjálfum sér. Það að vera ekki meðvirkur gagnvart sjálfum sér og öðrum. 

„Jákvæðni er heiðarleiki, að hafa glasið hálffullt og að halda í vonina. Neikvæðni er miklu auðveldari en jákvæðni. Það er miklu auðveldara að segja að maður geti ekki þetta og hitt, að hlutirnir munu klikka, að allt sé ömurlegt, að það sé engin von, að maður sé ekki nógu góður til þess að gera hluti og svo framvegis. Það að taka jákvæða pólinn á lífið, að trúa að maður geti gert eitthvað, að maður sé nógu góður, að maður ætli að finna lausnir frekar en vandamál, að það sé von og að hlutirnir geti raunverulega orðið betri er hugrekki. Það er líka mikilvægt að átta sig á því að stundum ganga hlutirnir ekki upp og það er allt í góðu lagi. Ef hlutirnir ganga ekki upp og maður þó tók þann pólinn í hæðina að glasið sé hálffullt þá að minnsta kosti reyndi maður og lærir þá eitthvað í leiðinni. Það er miklu skemmtilegra að horfa á lífið með glasið hálffullt og maður mun uppskera með því hugarfari.“

Kristján endar grein sína á eftirfarandi orðum:

„Minnkum það að spá í því sem minna máli skiptir eins og hverjir mættu á flokksþing, hverjir voru hvar, hvað þingmönnum finnst um vín í búðir og svo framvegis og förum að huga meira að samskiptum og hvernig okkur raunverulega líður. Þá verður heimurinn að minnsta kosti örlítið betri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Um 37% íslenskra tölva enn með Windows 10

Um 37% íslenskra tölva enn með Windows 10
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Simmi Vill í hálfgerðu atvinnuviðtali – „Ég tek á móti ráðningum“

Simmi Vill í hálfgerðu atvinnuviðtali – „Ég tek á móti ráðningum“
Fréttir
Í gær

Liðskonur Pussy Riot tjá sig um brottreknu tvíburana og ógnarstjórn Pútíns

Liðskonur Pussy Riot tjá sig um brottreknu tvíburana og ógnarstjórn Pútíns
Fréttir
Í gær

Aldís hefur verið beitt grófu stafrænu ofbeldi í 10 mánuði – „Ég vil bara fá líf mitt til baka. Mig langar bara að elda kvöldmat fyrir börnin mín “

Aldís hefur verið beitt grófu stafrænu ofbeldi í 10 mánuði – „Ég vil bara fá líf mitt til baka. Mig langar bara að elda kvöldmat fyrir börnin mín “