fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Fréttir

Bensínsprengju kastað í hús í Hafnarfirði

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. ágúst 2025 07:39

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flösku með bensíni var kastað í hús í Hafnarfirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að eldur kom upp. Í skeyti lögreglu kemur fram að minniháttar skemmdir hafi orðið. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir, til dæmis hvort meintir gerendur hafi fundist.

Í miðborginni var tilkynnt um vinnuslys á veitingastað þar sem kona datt og fékk minniháttar áverka á höfði. Hún var flutt á bráðamóttöku til frekari skoðunar.

Þá var maður í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 105 fyrir brot á lögreglusamþykkt og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Var hann vistaður í fangageymslu.

Lögregla hafði afskipti af nokkrum ökumönnum sem ýmist voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Einn þeirra, sem stöðvaður var í Kópavogi, var einnig grunaður um líkamsárás og var hann vistaður í fangaklefa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt