fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Hjón voru krafin um milljónir fyrir smávægilegt tjón – „Að leigja bíl á Íslandi er kviksyndi“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 30. júní 2025 11:30

Svartir blettir voru á baksýnisspegli og litlar rispur á framrúðu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk bílaleiga rukkaði kínverska ferðamenn 2,4 milljónir króna fyrir smávægilegar sandskemmdir. Ferðamennirnir voru þó með dýrustu trygginguna sem í boði var.

Greint er frá þessu á kínverska fréttamiðlinum Sohu.

Ferðamennirnir, hjónin herra og frú Li (dulnefni) frá borginni Chongqing, flugu frá Chengdu til Íslands í lok mars og dvöldu hér í eina viku. Þau leigðu lítinn Kia jeppling með þriggja mánaða fyrirvara hjá íslenskri bílaleigu.

Fyrir leiguna á bílnum greiddu hjónin um 2 þúsund yuan, sem gera um 34 þúsund krónur. Samkvæmt fréttinni segist frú Li hafa kynnt sér aðstæður á Íslandi vel og eftir þessa rannsókn ákveðið að kaupa dýrustu trygginguna sem í boði var. Kostaði hún meira en 15 þúsund krónur og átti að dekka tjón fyrir allt að 850 þúsund krónum, bæði vegna slysa og vegna eyðingar á dekkjum eða skemmdum á rúðum.

„Þjónustudeildin sagði mér að þetta væri ofur góð trygging,“ segir hún í viðtali.

Litlar skemmdir

Eins og margir ferðamenn ákváðu Li hjónin að keyra Suðurlandið en þessa daga var nokkur sterkur vindur. Blés því sandi yfir bílinn sem þau höfðu á leigu.

Til öryggis ákváðu hjónin að taka ljósmynd af bílnum áður en þau skiluðu honum og virtist ekki vera mikill munur á honum frá þeim tíma sem þau tóku við honum. Hafi mátt sjá örlitla svarta bletti á baksýnisspeglinum sem og litlar rispur á framrúðu.

Hjónin voru orðlaus þegar þau fengu fréttirnar.

Segir frú Li að sumar skemmdirnar hafi verið á bílnum þegar þau tóku við honum. Hann hafi líka verið skítugur og ryk verið á honum.

Borguðu hálfa milljón en fengu ekki kvittun

Hjónin skiluðu bílnum þann 4. apríl og starfsfólk bílaleigunnar kom út til að skoða bílinn. Starfsfólkið hringdi nokkur símtöl og tilkynntu herra Li svo að hann þyrfti að borga skaðabætur upp á 2,43 milljónir íslenska króna. Nýr bíll kostar 3,8 milljónir króna.

Vegna tungumálaörðugleika voru hjónin nokkra stund að átta sig á þessum fréttum. „Við vorum í áfalli að heyra þessa upphæð. Nei,“ sagði frú Li. „Bílaleigan straujaði greiðslukortið okkar á staðnum og reyndu að taka út 2,43 milljón krónur en það tókst ekki.“

Sjá einnig:

Fékk himinháa rukkun fyrir smábeyglu á bílaleigubíl – „Myndi ekki kalla þetta svindl en þetta er mjög ósanngjarnt“

Hjónin voru á leið í flug og óttuðust að missa af því vegna málsins. Sættust þau því á að borga borga 4 þúsund dollara, tæpa hálfa milljón króna, áður en þau fóru úr landi.

„Þetta hafði mikil áhrif á mig og löngun mína til að ferðast. Bílaleigan vildi heldur ekki staðfesta greiðsluna upp á 4 þúsund dollara og við fengum því enga kvittun,“ segir hún.

Kviksyndi

Eftir að þau komu aftur heim til Kína hélt bílaleigan áfram að krefja þau um greiðslu upp á 2,43 milljón krónur.

Frú Li segir að málið hafi haft áhrif á löngun hennar til ferðalaga.

„Við keyptum dýrustu trygginguna og þjónustudeildin sagði að hún myndi ná yfir skemmdir á framrúðu. Núna er bæði greiðslan upp á 4 þúsund dollara í óvissu og það er enn þá verið að krefja okkur um himinháa upphæð. Að leigja bíl á Íslandi er kviksyndi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans