fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. júní 2025 07:00

Xi Jinping, forseti Kína.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu mánuðum hafa mjög óvæntar vendingar átt sér stað í Kína varðandi stöðu Xi Jinping forseta. Þessar vendingar geta bent til þess að stutt sé í að hann láti af völdum, verði í raun hrakinn frá völdum.

Þetta segir í grein eftir Gregory W. Slayton, fyrrum háttsettan bandarískan diplómata, sem birtist á vef The Independent.

Slayton segir að á síðustu mánuðum hafi óvæntir hlutir átt sér stað, hlutir sem bendi til þess að valdatíð Xi Jinping kunni að ljúka bráðlega. Hann segir að eldri félagar í kommúnistaflokknum, þar á meðal Hu Jintao, sem verði væntanlega arftaki Xi, sem Xi niðurlægði á tuttugasta flokksþingi kommúnistaflokksins 2022, stýri nú hlutunum á bak við tjöldin.

Slayton segir að heilsa Xi sé slæm og líklegt sé að hann láti af völdum í ágúst eða taki við stöðu sem sé ekkert annað en skrautstaða og um leið valdalaus.

Hann bendir á að áður hafi orðrómar verið á sveimi um fall Xi en aldrei fyrr hafi viðlíka hreinsanir sést (og dularfull dauðsföll) hjá tugum hershöfðingja í kínverska hernum. Allir áttu þeir það sameiginlegt að vera Xi hliðhollir en nú hafa aðrir tekið við sem eru honum ekki hliðhollir.

Slayton segir að Zhang Youxia, sem Xi lenti harkalega saman við eftir að hann hjálpaði Xi að tryggja sér þriðja fimm ára kjörtímabilið sem forseti, stýri nú í raun hernum.

Þá sé það fordæmalaust að í maí hafi grafhýsi, sem Xi lét reisa föður sínum til heiðurs, verið svipt nafni sínu, sem vísaði til föður Xi. Grafhýsið er stærra en grafhýsi Maós og Deng.

Þess utan hafi lífvarðarsveit Xi verið skorin niður um helming.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan Páll lenti í fangelsi í Egyptalandi – „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“

Kjartan Páll lenti í fangelsi í Egyptalandi – „Heyrðu, hvað gerist ef ég játa?“