Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, er í viðtali á Samstöðinni, undir dagskrárliðnum „Óþekkti þingmaðurinn“.
Viðtalið sem sjá má í spilaranum hér að neðan er stórfróðlegt og skemmtilegt. Meðal þess sem vikið er að eru hótanir og ofbeldi gegn stjórnmálamönnum, nokkuð sem er algengt en nær aldrei er greint frá opinberlega. Kemur fram að Eiríkur varð fyrir slíku í starfi sínu sem bæjarstjóri en hann leggur þó áherslu á að slík atvik standi alls ekki upp úr á ferlinum:
„Ég hef lent í því í bæjarstjórastarfinu að mér hefur verið hótað og mér hefur verið ógnað. Það hefur þá iðulega verið fólk sem hefur ekki getað haft stjórn á sjálfu sér, undir áhrifum.“
Segist hann hafa hætt að sækja tiltekna staði á tilteknum tímum vegna áreitis. Hann segir: „Þó að ég sé ekki þekkt persóna þá í ákveðnum samfélögum, menn vissu hver ég var á Akureyri og svo framvegis, þá vildu menn oft fá að spjalla við bæjarstjórann kannski ef maður mætti einhvers staðar. En þá var þetta auðvitað ekki ákjósanlegt, hvorki fyrir þann sem vildi fá að spjalla við mann eða fyrir mig að vera í þessari stöðu að viðkomandi kannski sá eftir því sem hann sagði þegar hann var kominn heim til sín sko.“
Aðspurður segir Eiríkur að einu sinni hafi verið bókstaflega ráðist á sig. Hann sakaði þó ekki. Atvikið átti sér stað á veitingastað og skemmtistað snemma kvölds:
„Aðstæðurnar voru þannig að ég kom mér undan, ég var bara fljótur að koma mér undan, þannig að það sá ekkert á mér eða eitthvað slíkt. Þess vegna vil ég nú ekki fara að ýkja þetta eitthvað.“
Eiríkur segir að atvik á borð við þetta geta komið upp í hita leiksins. Hann hefur skilning á því að ákvarðanir stjórnmálamanna valdi fólki hugaræsingi. „Maður hefur verið í flóknum aðstæðum líka. Það er alls konar ástand í samfélaginu, gleymum því ekki. Ég var bæjarstjóri í hruninu og svo koma upp aðstæður í samfélögum þar sem teknar eru ákvarðanir sem fólk er ekki sátt við. Það eru alls konar hlutir sem liggja þarna að baki eða verða kveikjan að þessu.“
Eiríkur segir ennfremur: „En þetta er að sjálfsögðu ekki eitthvað sem stendur upp úr í þessu starfi, þetta er bara eitthvað sem maður hefur bara ýtt fyrir aftan bak. Fólk er ósátt, hefur ekki stjórn á sér og þá kannski leiðist það út í þetta.“