Ísraelskir fjölmiðlar segja að margra ára undirbúningsvinna hafi legið að baki árásunum, sem hófust þann 13. júní. Leyniþjónustan Mossad hafði unnið hörðum höndum við að koma upp leyndum drónastöðvum í Íran. Drónar voru sendir á loft frá þessum stöðvum til árása á írönsk loftvarnarkerfi. Þeir voru einnig notaði til að drepa háttsetta herforingja.
Al-Jazeera segir að eftir að búið var að drepa fyrstu írönsku herforingjanna hafi háttsettum embættismönnum og mönnum í öryggisgeiranum verið skipað að nota alls ekki farsíma. Almenningur var beðinn um að tilkynna yfirvöldum um útleigu á húsnæði til fyrirtækja og einstaklinga á síðustu árum.
Washington Post segir að perskneskumælandi Ísraelsmenn hafi hringt í háttsetta íranska hershöfðingja. Það var gert eftir að Ísraelsmenn höfðu drepið aðra háttsetta hershöfðingja og nú var komið að því að velja arftaka þeirra.
Miðillinn segir að markmiðið með símtölunum hafi verið hluti af áætlunum um að grafa undan klerkastjórninni.
Miðillinn vitnar síðan í símtal, sem blaðamaður þess heyrði upptöku af. Þar segir ísraelski leyniþjónustumaðurinn við íranskan hershöfðingja:
„Ég er með eitt ráð fyrir þig. Þú hefur 12 klukkustundir til að flýja með konuna þína og barn. Annars . . . þú ert á listanum okkar. Við erum nær þér en hálsslagæðin. Reyndu að skilja það. Megi guð vernda þig.“
Um tuttugu háttsettir hershöfðingjar fengu símtöl af þessu tagi. Hershöfðinginn, sem fékk fyrrgreint símtal, lifði af en sumir aðrir voru ekki svo heppnir.
Í upphafi samtalsins minnti Ísraelsmaðurinn hershöfðingjann á að þrír háttsettir herforingjar hefðu nú þegar verið drepnir. Þetta voru þeir Hossein Salami, foringi byltingarvarðarins, Mohammad Bagheri, yfirmaður íranska heraflans, og Ali Shamkhani, aðalráðgjafi Ali Khamenei, æðsta klerks.
Ísraelsmaðurinn sagðist koma frá landinu sem „sendi Salami, Bagheri og Shamkhani til helvítis.“
Markmið með þessum símtölum var að skapa ótta meðal herforingjanna sem þóttu líklegir til að verða hækkaðir í tign til að taka við af þeim föllnu.