Frá því að Trump tók við forsetaembættinu hefur hann þrýst á um frið í Úkraínu en hefur ekki viljað heita Úkraínu skilyrðislausum stuðningi í varnarbaráttunni gegn rússneska innrásarhernum.
Trump hafði heitið því að binda enda á stríðið á fyrsta degi sínum í Hvíta húsinu en annað hvort mælir hann daga á annan hátt en við hin eða þá að honum hefur bara algjörlega mistekist það.
Nýlega sagði hann að kannski sé best að láta Rússa og Úkraínumenn „berjast um hríð“ og þykir það til merkis um dvínandi áhuga hans á að binda enda á stríðið.
Brennan sagði í samtali við Sky News að nálgun Trump á málinu og tilraunir til að binda skjótan enda á stríðið hafi verið „barnalegar“ og „ófullkomnar“.
„Ég held að Donald Trump viti ekki hvað hann ætlar að gera,“ sagði Brennan þegar hann var spurður um næstu skref Trump til að koma á friði í Úkraínu.
Samninganefndir Rússa og Úkraínumanna hafa hist nokkrum sinnum frá upphafi stríðsins en hafa ekki náð neinum áþreifanlegum árangri öðrum en að semja um skipti á stríðsföngum og líkum fallinna hermanna.
Samband Brennan og Trump hefur ekki verið gott í gegnum tíðina. Á fyrra kjörtímabili Trump gagnrýndi Brennan Trump fyrir stefnu hans í utanríkismálum. Trump sagði Brennan þá vera „versta“ forstjóra CIA í sögu stofnunarinnar. Í janúar á þessu ári afturkallaði hann öryggisheimildir Brennan.