Markmið Rússa með þessu var að láta reyna á Úkraínu, valda óróleika og snúa almenningi gegn yfirvöldum.
Sama staða gæti fljótlega komið upp í Eystrasaltsríkjunum þremur. Þetta sagði Bruno Kahl, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar Bundesnachrichtendienst, nýlega í samtali við Reuters.
„Við erum mjög viss um, og upplýsingar okkar sýna þetta, að Úkraína er bara eitt skref í vesturátt. Það þýðir ekki að við reiknum með að skriðdrekar fari að aka í vesturátt. En við munum sjá að látið verður reyna á sameiginlegar varnir NATÓ,“ sagði hann.
Síðan kom punkturinn um „litlu grænu mennina“:
„Þeir þurfa ekki að senda skriðdreka til að gera þetta. Þeir þurfa bara að senda „litla græna menn“ til Eistlands til að vernda það sem þeir segja vera kúgaðan rússneskan minnihluta.“
Ekki dregur það úr vægi orða Kahl að Sergei Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, sagði nýlega í samtali við rússnesku ríkisfréttastofuna Tass að eitt mikilvægasta málið til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé útþensla NATÓ til austurs og ósk Úkraínu um aðild að varnarbandalaginu.
Hann gaf í skyn að NATÓ verði að kalla herlið sitt frá Eystrasaltsríkjunum ef semja á um frið. Það þurfi að vera fyrsta skrefið.
Flemming Splidsboel, sem er sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni DIIS, sagði í samtali við B.T. að Rússar leggi mikið að veði og að þeir ætli að halda hernaði sínum í Úkraínu áfram.
Hann sagðist ekki vera í neinum vafa um að Rússar hafi augastað á Eystrasaltsríkjunum þremur. Líklega til að láta reyna á samstöðu NATÓ-ríkjanna.
„Það er algjörlega útilokað að NATÓ gefi Eystrasaltsríkin upp á bátinn. En það er ekki óhugsandi að eitthvað gerist þar,“ sagði hann og tók sem dæmi eistneska bæinn Narva:
„Eistneski bærinn Narva er á landamærunum við Rússland. Þar er brú yfir á og þá er maður kominn til Rússlands. Ég get alveg séð fyrir mér að rússneskir hermenn fari yfir brúna, taki ráðhúsið á sitt vald og eitthvað fólk Þeir fari síðan aftur til Rússlands eftir nokkrar klukkustundir. Bara til að sjá viðbrögð NATÓ.“
„Þetta er óþægileg lesning,“ sagði hann.