fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Egill segir samanburð Viðskiptaráðs kjánalegan – „Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 22. maí 2025 10:30

Egill bendir á að miklar breytingar hafi orðið á samfélaginu á þessum langa tíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Egill Helgason fjölmiðlamaður segir það kjánalegt og skrýtið af Viðskiptaráði að bera saman opinber störf um miðja síðustu öld og nú og tala um gríðarlega fjölgun. Egill bendir á að það sé samfélagið sem hafi breyst gríðarlega á þessum tíma.

„Þetta er skrítin framsetning hjá Viðskiptaráði,“ segir Egill í færslu á samfélagsmiðlum og vitnar í frétt Vísis um skýrslu Viðskiptaráðs um áhrifa uppsagnarverndar opinberra starfsmanna. „Þarna segir að fjöldi opinberra starfsmanna hafi aukist gríðarlega „frá því ákvæði starfsmannalaganna um áminningar tók fyrst gildi“.“

Fjölgun opinberra starfsmanna skýrist einkum af aukningu mannafla í menntun og á heilbrigðissviði. Egill bendir hins vegar á að margt hafi breyst í samfélaginu sem skýrir þessa fjölgun.

„Jú, flestir landsmenn klára nú stúdentspróf og svo fara menn í háskóla ólíkt því sem var þegar ungt fólk kláraði bara „skylduna“ og menntaskólar voru teljandi á fingrum annarrar handar,“ segir hann. Heilsan hafi einnig breyst til mun. „Meðalaldur þjóðarinnar hefur hækkað mikið frá því á tíma áminningarskyldunnar (1954), jú, fólk lifir lengur, er hraustara, en vill um leið miklu meiri þjónustu lækna og hjúkrunarfólks – allt þar til það deyr í hárri elli.“

Þetta geri það að verkum að samanburður Viðskiptaráðs sé undarlegur.

„Já, það má vel vera að opinberir starfsmenn njóti sumir of mikillar vinnuverndar, en ansi er þetta nú kjánalega sett fram,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin