fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. maí 2025 09:16

Kári Stefánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur látið af störfum sem forstjóri hjá fyrirtækinu.  Dr. Unnur Þorsteinsdóttir og Patrick Sulem munu saman leiða starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar á Íslandi, en þau hafa bæði starfað hjá fyrirtækinu um langt árabil.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Íslensk erfðagreining hefur gegnt lykilhlutverki á heimsvísu í erfðarannsóknum sem tengjast algengum sjúkdómum og hefur félagið haslað sér völl sem eitt fremsta fyrirtæki heims á sviði erfðafræðirannsókna.  Kári er 76 ára en ekki liggur fyrir hvort hann ætli að setjast í helgan stein.

Unnur hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 2000 en hún starfaði sem framkvæmdastjóri erfðarannsókna hjá fyrirtækinu.  „Hún er talin einn fremsti erfðafræðingur heims, brautryðjandi meðal kvenna í vísindum á heimsvísu, og var valin áhrifamesta vísindakona Evrópu af Research.com árið 2023. Hún er prófessor við læknadeild og starfaði sem forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands 2022- 2024,“ segir í tilkynningunni.

Patrick Sulem er læknir (M.D.) og hefur hann starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2002.  Áður en hann tók við stöðu framkvæmdastjóra leiddi hann klínísk raðgreiningarverkefni (Clinical Sequencing) hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hann er sérhæfður í faraldsfræði og lýðheilsu og hefur hann verið þátttakandi í viðamiklum erfðafræðirannsóknum ólíkra sjúkdóma í gegnum störf sín hjá fyrirtækinu.

„Frá því ég kom til Íslenskrar erfðagreiningar eftir nám við Háskólann í British Columbia fyrir 25 árum, hafa það verið sannkölluð forréttindi að taka þátt í rannsóknum sem komu Íslandi á kortið í erfðafræði mannsins,“ er haft eftir Unni í tilkynningunni.

Ég finn til mikillar ábyrgðar á degi hverjum því það er skylda okkar að tryggja að vísindalegar uppgvötanir okkar stuðli áfram að bættum lífsgæðum og að við getum stutt dyggilega við bakið á íslensku vísindasamfélagi til framtíðar. Við eigum enn langt í land með að skilja til fulls undur erfðavísindanna og ég er jafn innblásin í dag og ég var fyrsta daginn minn hjá Íslenskri erfðagreiningu.“

„Þegar ég horfi til framtíðar er ég sannfærður um mikilvægi erfðafræðirannsókna fyrir framþróun læknavísinda. Ég er staðráðinn í að efla það hlutverk okkar hjá Íslenskri erfðagreiningu að nýta erfðafræði á þann hátt að hún auki ekki aðeins vísindalegan skilning heldur skili einnig raunverulegum ávinningi fyrir sjúklinga,“ er haft eftir Patrik Sulem í tilkynningunni.Ég hlakka til að vinna með Unni og okkar frábæra teymi sem áfram mun takast á við það mikilvæga verkefni að umbreyta læknisfræðinni með erfðafræðirannsóknum.“

„Dr. Kári Stefánsson hefur gengt lykilhlutverki við að festa Íslenska erfðagreiningu í sessi sem leiðandi fyrirtæki og rannsóknarstofnun á sviði erfðafræða,” er haft eftir Jay Bradner, framkvæmdastjóra rannsókna og þróunar hjá Amgen.

„Við erum full þakklætis fyrir framlag Kára og við erum ákveðin í að þróa Ísland áfram sem lykilstað fyrir erfðafræðirannsóknir í lækningaskyni. Við munum halda áfram á þeirri leið sem starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar hefur markað og þeim árangri sem náðst hefur.”  

Íslensk erfðagreining er í eigu Amgen sem skráð er í NASDAQ kauphöllina í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin