fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Enginn treystir Trump

Ritstjórn DV
Mánudaginn 7. apríl 2025 03:10

Hvað gerir Trump í þessu máli?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rifrildið á milli Donald Trump og J.D. Vance annars vegar og Volodymyr Zelenskyy, forseta Úkraínu, í Hvíta húsinu er langt frá því að vera gleymt í Úkraínu. Hin djúpa gjá, sem augljóslega er á milli forsetanna, var mikið áfall fyrir úkraínsku þjóðina sem glímir við mikla erfiðleika vegna stríðsins við Rússa.

Úkraínubúar telja það nánast óhjákvæmilegt að Trump verði fljótlega aftur fúll út í Zelenskyy og stöðvi aftur vopnasendingar til Úkraínu. Hvað Zelenskyy varðar, þá er aðalverkefni hans þessa dagana að halda Trump góðum eins lengi og hægt er til að tryggja áframhaldandi vopnasendingar.

Trump stöðvaði vopnasendingarnar tímabundið í mars til að þvinga Zelenskyy að samningaborðinu. Úkraínubúar áttu engan annan kost en að gera það sem Trump vildi. Því reynir Zelenskyy nú að halda Trump góðum til að vinna tíma og tryggja áframhalandi vopnasendingar.

En stemmningin er slæm meðal úkraínskra stjórnmálamanna. Nýlega lagði Trump fram nýja tillögu um aðgang Bandaríkjamanna að auðlindum í Úkraínu og minnir hún einna helst á algjöra yfirtöku Bandaríkjanna á úkraínsku efnahagslífi. Þessu á Zelenskyy erfitt með að kyngja.

Úkraínubúum finnst Trump draga taum Pútíns og draumurinn um sanngjarnan friðarsamning hangir á bláþræði í huga landsmanna. Af þessum sökum vinnur Zelenskyy með bæði skammtíma og langtíma áætlun. Hann reynir að halda Trump góðum eins lengi og hægt er en samtímis reynir hann að styrkja bandalagið við ESB-ríkin.

Vonin er að ESB geti á einhverjum tímapunkti fyllt í skarð Bandaríkjanna þegar kemur að vopnasendingum.

Úkraínskir stjórnmálamenn undirbúa sig nú undir sviðsmynd þar sem þeir neyðast til að hafna friðarsamningi sem verði gerður á grunni skilmála Pútíns. Það myndi eflaust reita Trump til reiði og valda nýrri diplómatískri krísu á milli landanna. Hún gæti haft alvarlegar afleiðingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin