fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Sérfræðingur varar við blautum draumi Pútíns – „NATÓ þarf að vera undir þetta búið“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 3. apríl 2025 03:07

Endar Vladimír Pútín dinglandi í ljósastaur? Mynd/EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump tönglast hvað eftir annað á því að hann vilji eignast Grænland. Sænskur sérfræðingur segir að NATÓ þurfi að vera undir það búið að berjast um annað svæði á norðurheimsskautasvæðinu.

Elisabeth Braw, sænskur sérfræðingur í öryggismálum, skrifaði grein í Politico þar sem hún varar við fyrirætlunum Rússa varðandi Svalbarða og bendir á að Pútín og hans fólk hafi lengi gjóað augunum á Svalbarða.

„Það leikur enginn vafi á að Svalbarði er afskekktur og kaldur en staðsetning eyjuþyrpingarinnar er mikilvæg og Rússland gæti vel notað hana sem æfingasvæði (til að ögra Vesturlöndum, innsk. blaðamanns). Þess vegna er kominn tími til að við veitum því miklu meiri athygli hvað er að gerast þar,“ skrifar hún.

Snemma í mars sakaði Rússland Noreg, sem fer með stjórn Svalbarða, um „hernaðarlega og pólitíska skipulagningu“ á Svalbarða í samvinnu við Bandaríkin og NATÓ og sagði þetta brjóta gegn Svalbarðasáttmálanum.

Svalbarðasáttmálin veitti Noregi yfirráð yfir eyjunum og um leið var aðgengi ríkisborgara og fyrirtækja frá öðrum löndum að eyjunum tryggður.

Frá 1927 til 1998 voru Sovétríkin og Rússland með námubæinn Pyramiden á Svalbarða. Hann var síðan yfirgefin en á síðasta ári reisti forstjóri rússneska ríkisnámufélagsins Arktikugol tvo sovéska fána í bænum.

Í maí 2023 efndu Rússar til heræfingar í bænum Barentsburg en þar bjuggu aðallega Rússar árum saman.

„NATÓ-ríkin og önnur bandalög myndu vera skynsöm ef þau byrja að íhuga hvernig brugðist verður við ef Rússar láta til skara skríða gegn einu afskekktasta svæði NATÓ,“ skrifar Braw.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast