fbpx
Mánudagur 05.maí 2025
Fréttir

Vilborg ómyrk í máli: „Íslenska heilbrigðiskerfið gerir upp á milli sjúklingahópa“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. mars 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það má fullyrða að íslenska heilbrigðiskerfið gerir upp á milli sjúklingahópa,“ segir Vilborg Gunnarsdóttir, stjórnarkona í Alzheimersamtökunum, í aðsendri grein á vef Vísis.

Í grein sinni gagnrýnir Vilborg það úrræðaleysi sem ríkir í málefnum einstaklinga með Alzheimer hér á landi og tekur tilbúin dæmi af annars vegar einstaklingi með krabbamein og hins vegar Alzheimer.

„Þú ert mætt til læknisins þíns og bíður niðurstöðu úr sýnatökum. Nokkuð er síðan þú fórst að finna fyrir einkennum sem að lokum urðu til þess að þú ákvaðst að láta skoða hvað mögulega væri að. Að venju tók við bið eftir að fá tíma hjá lækninum en hann sá ástæðu til frekari skoðunar og sýnatöku,“ segir Vilborg og heldur áfram:

„Þetta hefur valdið þér og nánustu fjölskyldu nokkrum áhyggjum og kvíða. Og nú er komið að því að fá niðurstöðurnar. Slæmar fréttir. Þú ert með krabbamein sem er aðeins meira en á byrjunarstigi og hætta er á að ef ekkert verður að gert, nái það að breiðast út og gæti mögulega dregið þig til dauða.“

Vilborg segir að í þessu dæmi sé læknirinn tilbúinn með plan um næstu skref.

„Þú þarft að fara í aðgerð, sem líklega verður framkvæmd innan tveggja vikna og í framhaldinu muntu fara í lyfjameðferð í ár. Vel verður fylgst með á þessum tíma hvort meðferðin er að skila árangri.“

Annað dæmi

Hún heldur svo áfram og segir að á næstu læknastofu við hliðina sitji hjón á besta aldri og bíða niðurstöðu rannsókna.

„Nokkuð er síðan bera fór á einkennum sem mögulega gætu þýtt byrjun á heilabilun. Einstaklingurinn hefur verið illa áttaður, endurtekur sig, man ekki hvar hlutir er geymdir og á orðið erfitt með athafnir í daglegu lífi sem léku í höndum hans áður.

Það tók of langan tíma að komast í þessa greiningu sem felst í viðtölum við sérfræðinga, myndatöku á heila og jafnvel mænuástungu. Fjölskyldan hefur áhyggjur enda hefur hún í millitíðinni kynnt sér hvað hugsanlega bíður þeirra allra ef sjúkdómsgreiningin reynist vera heilabilun.“

Svo koma slæmu fréttirnar og niðurstaðan er Alzheimer sem er kominn örlítið lengra en að vera á byrjunarstigi.

„Læknirinn segir eins og er að enn séu ný lyf sem dregið geta úr framgangi sjúkdómsins ekki komin í notkun hér á landi og að þegar það verði, muni mjög fáir fá að prófa þau meðal annars vegna kostnaðar. Og þessi sjúkdómur dregur þig örugglega til dauða fyrr en ella, en það er hægt að hægja verulega á honum og lengja þannig líf með gæðum.

Læknirinn segir ykkur frá því að rannsóknir hafi sýnt fram á að með markvissri virkniþjálfun sé hægt að hægja jafn mikið á framgangi sjúkdómsins og með lyfjunum. En það er aðeins einn slík meðferðarstöð til, Seiglan í Hafnarfirði sem rekin er af Alzheimersamtökunum. Og þar er allt fullt! Hann sækir um fyrir þig og segir þér að fara heim og bíða. Við vitum öll að slík bið hefur mjög slæm áhrif á framgang sjúkdómsins og að hætta er á að þegar loksins losnar pláss, verði viðkomandi orðinn of veikur til að geta haft af því gagn.“

Gert upp á milli sjúklingahópa

Vilborg segir í grein sinni að Seiglan geti þjónað um það bil 60 einstaklingum og hafi svo sannarlega sannað gildi sitt. Því miður bíði núna jafn margir eftir að komast þar að og þeim muni bara fjölga.

„Það má fullyrða að íslenska heilbrigðiskerfið gerir upp á milli sjúklingahópa. Enginn myndi sætta sig við að fá greiningu um krabbamein og vera sagt að fara heim og bíða þar sem fjármagn fyrir lyfjakaup í þessum flokki sé uppurið þetta árið og að þú farir á biðlista næsta ár. Því miður hafa einstaklingar með heilabilun ekki getu eða baráttuþrek til að berjast fyrir réttlæti í þessum efnum og fjölskyldan er oftar en ekki of uppgefin líka.“

Vilborgi segir að lokum að það væri einfalt að setja fram reikningsdæmi og sýna fram á hversu mikið ríkið sparaði með því að leggja fram fé til að efla virkni þessa hóps.

„Það myndi seinka dýrari þjónustu um mörg ár. Eftir hverju eru þau að bíða?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir vinnubrögð samskiptaráðgjafa hafa ýtt bróður sínum í sjálfsvíg – ,,Við fáum aldrei manninn til baka. Við ætlum að hreinsa mannorðið hans“

Segir vinnubrögð samskiptaráðgjafa hafa ýtt bróður sínum í sjálfsvíg – ,,Við fáum aldrei manninn til baka. Við ætlum að hreinsa mannorðið hans“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ágústa mætir í dómsal til að styðja þolanda Vopnafjarðarhrottans – „Hvers vegna lítur dómskerfið á þessi ofbeldisverk svo ofboðslega vægum augum?“

Ágústa mætir í dómsal til að styðja þolanda Vopnafjarðarhrottans – „Hvers vegna lítur dómskerfið á þessi ofbeldisverk svo ofboðslega vægum augum?“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ingibjörgu Sólrúnu ofboðið: „Rán um hábjartan dag!“ – Sjáðu kvittunina

Ingibjörgu Sólrúnu ofboðið: „Rán um hábjartan dag!“ – Sjáðu kvittunina
Fréttir
Í gær

Pedro Pascal í Reykjavík – Naut veitinga á Kaffi Vest

Pedro Pascal í Reykjavík – Naut veitinga á Kaffi Vest
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna hæðist að Valdimar Leó sem ekki fékk greidd laun hjá Virðingu – „Karlgreyið“

Sólveig Anna hæðist að Valdimar Leó sem ekki fékk greidd laun hjá Virðingu – „Karlgreyið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir ekki skrýtið að Kristrún mælist svo vel – Heiðrún Lind móti málflutning Sjálfstæðisflokksins

Össur segir ekki skrýtið að Kristrún mælist svo vel – Heiðrún Lind móti málflutning Sjálfstæðisflokksins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svikasímtöl sem sýnast úr íslenskum númerum færast í aukana – „Þetta er orðið frekar mikið vandamál hérna“

Svikasímtöl sem sýnast úr íslenskum númerum færast í aukana – „Þetta er orðið frekar mikið vandamál hérna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heilbrigðisfulltrúi tók sér vald sem hann hafði ekki

Heilbrigðisfulltrúi tók sér vald sem hann hafði ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagðist ekki hafa verið „með gáfur til þess“ að telja tugi milljóna fram til skatts

Sagðist ekki hafa verið „með gáfur til þess“ að telja tugi milljóna fram til skatts