Manni sem sakaður er um að hafa áreitt konu kynferðislega á salerni á bar í nýjum miðbæ Selfoss fyrir tveimur árum hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu.
Atvikið átti sér stað þann 14. ágúst 2022. Hinn ákærði, sem er frá Litháen, er sagður hafa haldið annarri hönd konunnar fasti við vegg salernisins, káfað á brjóstum hennar utan klæða, kysst háls hennar og sleikt hægra eyra og farið með hendi sína inn undir kjól hennar og niður fyrir buxnastreng sokkabuxna sem hún var klædd í.
Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Konan fer fram á tvær milljónir króna í miskabætur.
Í fyrirkallinu segir: „Ákærði er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing, við þingfestingu máls eða á síðari stigum þess, má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður.“
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands þann 3. október næstkomandi.