Á samfélagsmiðlinum Reddit kennir ýmissa grasa og þar má finna undirsíðuna Visiting Iceland þar sem ferðamenn skiptast á upplýsingum um landið og deila gjarnan skemmtilegum frásögnum.
Um helgina birtist frásögn ferðamanns sem segist vera orðin háður Egils appelsíni og ákvað að taka með sér 12 flöskur í hálfs lítra umbúðum til Bandaríkjanna.
„Hefur einhver tékkað inn kassa af þessu til að taka með sér heim? Konan á innritunarborði Icelandair varð að hringja í yfirmann sinn því hún hafði aldrei séð neitt þessu líkt. Sem betur fer komust flöskurnar heilar heim en nokkrar höfðu þó losnað í pokanum sem þau létu mig fá.“
Ferðamaðurinn segist í næstu heimsókn til Íslands ætla að reyna að finna stærri umbúðir til að geta tekið með sér meira magn.
„Ég hélt að Costco myndi eiga þetta en svo var ekki þannig að ég sætti mig við þessa kippu í Bónus. Ég drakk þetta á einni viku. Þetta hressandi appelsínubragð er bara ekki líkt neinu öðru appelsínugosi. Ég vildi að þetta væri til í Bandaríkjunum,“ segir viðkomandi.