fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 18. apríl 2024 21:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég trúi því að það sé hægt að búa til betra, áreiðanlegra strætókerfi, t.d. strætó sem gengur fram á kvöld um helgar, strætó sem ekur oftar yfir daginn og strætósamgöngur sem bjóða upp á hugguleg biðskýli sem taka vel á móti strætófarþegum,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalista, í Facebook-pistli þar sem hún lýsir vægast sagt skrautlegri strætóferð hennar og móður sinnar er þær vildu komast í fermingarveislu í Garðabæ. Þegar upp var staðið vörðu þær mæðgur lengri tíma á ferðinni með strætisvögnum þennan dag en í veislunni sjálfri.

Ferðasagan hlýtur að vekja mörgum þær hugrenningar að þjónustu strætisvagna mætti vera þéttari og fyrirsjáanlegri. Þetta virðist hafa verið ruglingsleg ferð og nokkuð stressandi. Sagan er svona:

„Við mæðgur fórum í fermingarveislu síðastliðinn sunnudag og ákváðum að vera samferða. Ég var í Alþýðuhúsinu Vorstjörnu í Bolholti 6 og mamma í Breiðholti.

Þar sem ég var nálægt Suðurlandsbrautinni blasti við að ná vagni númer 17 beint upp í Mjódd en mundi þá að það væri sunnudagur og einhverra hluta vegna gengur 17 ekki á sunnudögum.

Planið var að taka ellefuna frá Lágmúla klukkan 15:48. Ég var mætt snemma á stoppistöðina til öryggis en svo var strætóinn seinn. Mér leiddist ekki á meðan ég beið því ég fylgdist með gæsum reyna að komast yfir umferðargötuna.

En svo var ég stressuð þegar strætóinn lét ekki sjá sig. (Hér skal þó tekið fram að ég bý við mikil forréttindi, er með há laun og get því pantað og greitt fyrir leigubíl ef allt skyldi klikka varðandi strætótengingar. Ekki að ég sé mikið að gera það en þarna hef ég valmöguleika sem aðrir hafa ekki).

Stressið var farið að ná mér því planið var að vera mætt 16:01 upp í Mjódd og ná leið 24 frá Mjóddinni klukkan 16:09. Þegar ég var að skipuleggja þessa ferð fyrr um daginn hugsaði ég með mér að þó svo að ellefan yrði smá sein þá væri það í lagi því ég hefði þarna auka 8 mínútur til öryggis. En svo var vagninn 8 mínútum of seinn.

Þegar ellefan nálgaðist Mjóddina, var ég tilbúin til þess að hlaupa út og reyna að ná vagni númer 24, sem ég rétt svo náði. Svo héldum við mæðgur upp í Garðabæ og planið var að ná vagni númer 23 frá Ásgarði klukkan 16:28, fara út eftir nokkur stopp og rölta á áfangastað.

Við komum upp í Ásgarð á þeirri mínútu sem vagn númer 23 átti að leggja af stað. Við héldum að við værum á síðustu stundu en skoðuðum þá tímatöfluna nánar og komumst að því að við lásum ekki rétt út úr henni þegar ferðin var undirbúin. Við héldum nefnilega að við ættum að ná vagninum 16:28 en málið er að eftir hádegi breytist tímataflan slatta.

Þannig að í staðinn fyrir að leggja af stað ’28 og ’58, þá fer vagninn ’17 og ’47 eftir hádegi. Við biðum því á Aktu Taktu í sirka 20 mínútur, ekki alveg nægur tími til að panta hamborgaratilboð en nægur tími til þess að pústa aðeins. Þetta var svo sem fínt því annars hefðum við mætt of snemma í veisluna.

Klukkan 16:47 lögðum við af stað upp á Garðholtsveg í vagni nr. 23, sem var krúttlegur lítill vagn (svona vagnar myndu virka vel sem hverfisstrætó t.d. fyrir íbúa vesturbæjar sem þurfa að komast á Granda). Við mæðgur röltum síðan á áfangastað og hittum fjölskylduna í fermingarveislunni.

Til að vera alveg vissar um að festast ekki í Garðabænum, skoðuðum við hversu lengi vagn númer 23 væri á ferðinni. Við sáum merkið P47 og P17 í tímatöflunni, ég veit ekki alveg hvaða tímasetning það á að vera en við nánari athugun vísar það til pöntunarþjónustunnar. Þannig að eftir klukkan 19:47 hættir vagn númer 23 að ganga en það er hægt að panta ferð í gegnum pöntunarþjónustu. Það þarf að hringja a.m.k 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.

Þegar við fórum heim tókum við vagn nr. 23 á meðan hann var enn á ferðinni. Frá Ásgarði náðum við vagni númer 24 sem átti að leggja af stað 3 mínútur yfir en fór of snemma af stað. Sem betur fer vorum við mæðgur komnar inn í vagninn en sáum nokkur ungmenni hlaupa í átt að vagninum, sennilega að reyna að ná þessum vagni sem var á undan áætlun.“

Heimferðin gekk vel en þær mæðgur reiknuðu hins vegar út að þær hefðu varið lengri tíma á ferðinni en í veislunni.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Í gær

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttað verður yfir móðurinni á Nýbýlavegi fyrir luktum dyrum

Réttað verður yfir móðurinni á Nýbýlavegi fyrir luktum dyrum