fbpx
Laugardagur 09.nóvember 2024
Fréttir

Steinunn Ólína með skýr skilaboð og vill að hann leiði bráðabirgðastjórn

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 15. október 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Almenningur vill ekki fleiri hol loforð og glatað valdabrölt. Við viljum að verkin séu unnin,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, í pistli á Facebook-síðu sinni í gær.

Óvíst er hvað tekur við eftir að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, ákvað að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu á sunnudag. Hann sagði þó í Silfrinu í gær að hann myndi biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti ef ekki næðist sátt um samstarf ríkisstjórnarinnar fram að kosningum.

Steinunn Ólína sat fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi og skrifaði færslu á Facebook þar sem hún viðraði sínar hugmyndir.

„Óvinsælasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar slítur ríkisstjórn.  Þar með er hann úr sögunni. Nú þurfum við starfhæfa stjórn, vitanlega án aðkomu eða eftir stjórnlyndi Bjarna enda skráði hann sig úr leik og mun biðjast lausnar.  S. Ingi er kjörinn til að leiða bráðabirgðarstjórn, hann er okkar reyndasti vararáðherra og alveg til í það,“ segir hún og bætir við að undir slíkri bráðabirgðastjórn gefist kjósendum loksins tækifæri til að sjá hvernig þingið starfar án Bjarna og Katrínar Jakobsdóttur.

„Ég er ekkert viss um að slík stjórn þurfi að vera neitt verri en það sem verið hefur, eitthvað gæti batnað meira að segja og svo er þá hægt að ganga til kosninga í rólegheitum eftir áramót,“ segir hún.

„Eftir að horfa á Silfrið segi ég bara fyrir mig: Nú vildi ég að starfandi þingmenn og ráðherrar  kæmu sér saman um að vinna að hagsmunum landsmanna eingöngu en eyða ekki dýrmætum tíma okkar í andlitslyftingar og loforðaflaum um hvað þau séu tilbúin til kosninga. Því trúir enginn,“ segir hún.

Steinunn Ólína segir loks að almenningur vilji ekki fleiri hol loforð og glatað valdabrölt.

„Við viljum að verkin séu unnin. Þau verk þarf að vinna NÚNA! Ef þingmenn og ráðherrar landsins bera hag landsmanna fyrir brjósti þá ganga þeir samtaka til verka um aðalatriðin og sýna hvað í þeim býr. Af ástríðu. Þegar við höfum séð það raungerast, þá er hægt að kjósa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ásakanir um slæman aðbúnað barna og algjöran skort á leikskólastarfi á leikskóla í Reykjavík

Ásakanir um slæman aðbúnað barna og algjöran skort á leikskólastarfi á leikskóla í Reykjavík
Fréttir
Í gær

Ragnar Þór segir þöggun ríkja um lífeyriskerfið á Íslandi – „Uppgjöf, skammsýni og metnaðarleysi“

Ragnar Þór segir þöggun ríkja um lífeyriskerfið á Íslandi – „Uppgjöf, skammsýni og metnaðarleysi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihluti Kópavogs sakaður um óvirðingu gagnvart fráfarandi skjalaverði – Setti lyklana í umslag því enginn kom og talaði við hann

Meirihluti Kópavogs sakaður um óvirðingu gagnvart fráfarandi skjalaverði – Setti lyklana í umslag því enginn kom og talaði við hann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómar Guðmundar og Ernu vegna stórfelldra fíkniefnabrota staðfestir – Sérsveitin réðst inn á heimili þeirra 2017

Dómar Guðmundar og Ernu vegna stórfelldra fíkniefnabrota staðfestir – Sérsveitin réðst inn á heimili þeirra 2017
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamaður kom að gistiheimilinu tómu og fylltist kvíða – Skýringin er það íslenskasta sem þú hefur heyrt í dag

Ferðamaður kom að gistiheimilinu tómu og fylltist kvíða – Skýringin er það íslenskasta sem þú hefur heyrt í dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir kennara ekki vera í alvöru verkfalli – „Missir ekki svefn þó nokkur lítil börn úti í bæ séu svipt skólastarfinu“

Segir kennara ekki vera í alvöru verkfalli – „Missir ekki svefn þó nokkur lítil börn úti í bæ séu svipt skólastarfinu“