fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Lilja segir ekki hægt að bíða: „Ég held að enginn vilji hugsa þessa hugsun til enda“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. september 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það þarf oft alvarlega atburði svo stjórnvöld vakni við og grípi til aðgerða,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingkona um óhugnanlegt atvik sem átti sér stað í Tungudal í Skutulsfirði á föstudag. Eldur kom þá upp í rútu skömmu eftir að rútan kom út úr Vestfjarðargöngum.

Ljóst má vera að illa hefði getað farið hefði eldurinn komið upp örlítið áður, eða þegar rútan var í inni í göngunum. Lilja segir að þessi atburður hljóti að vekja stjórnvöld svo ráðist verði í viðunandi ráðstafanir í göngunum sem hún segir að sé eins og rússnesk rúlletta. Umferð sé þar mikil og göngin þar að auki einbreið að stærstum hluta.

Lilja, sem var á ferð á þessum slóðum þegar atvikið varð, segir í aðsendri grein á Vísi að það megi kalla guðsmildi að rútan hafi ekki verið inni í göngunum og farþegar hafi komist út.

„Eins og aðstoðarslökkviliðsstjóri komst að orði „að hann vildi ekki hugsa þá hugsun til enda ef eldurinn hefði kviknað í einbreiðum göngunum“. Rútan sem brann var í samfloti með fjörum öðrum rútum með alls um 300 farþega og auk þess mikil umferð annara bíla á föstudegi. Það hefði verið óvinnandi vegur að athafna sig í einbreiðum hluta gangnanna, göngin hefðu fyllst af baneitruðum reyk mikill eldsmatur í klæðningu gangaveggja og blásturskerfið magnar eldinn og engin flóttaleið. Nei ég held að enginn vilji hugsa þessa hugsun til enda en við þurfum samt að gera það,“ segir hún.

Lilja er þeirrar skoðunar að koma þurfi inn í samgönguáætlun strax áformum um breikkun einbreiðra ganga og þá hvortveggja Breiðadals- og Súgandafjarðarleggsins. Segir hún að ráðamenn hafi ekki barist fyrir því sem skyldi og atvikið á föstudag verði vonandi til þess að vekja menn.

„Það koma um 200 skemmtiferðaskip til Ísafjarðar ár hvert með þúsundir farþega og miklir farþegaflutningar eru með rútum í skoðunarferðir í hverri viku um svæðið og í gegnum Vestfjarðargöng og ekki síður í gegnum Súgandafjarðarafleggjarann ásamt miklum fiskflutningum.“

Lilja ítrekar að þessi alvarlegi atburður kalli á aðgerðir og ekki megi sópa honum undir teppið.

„Hér fá stjórnvöld alvarlega viðvörun um atburði sem hefðu getað orðið hörmulegir ef þeir hefðu gerst nokkrum mínútum fyrr og tækifæri á að áhættuminnka afleiðingar slysa sem geta orðið í stórhættulegum einbreiðum göngum sem eru ólögleg í dag. Strax þarf að gera þær ráðstafanir sem draga úr slysahættu og koma breikkun einbreiðra Vestfjarðargangna á dagskrá í nútíma en ekki í fjarlægri framtíð það getur orðið dýrkeypt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kröfuhafi situr eftir með sárt ennið eftir að afsal var ógilt – Sakar Gandra um lævísa fléttu

Kröfuhafi situr eftir með sárt ennið eftir að afsal var ógilt – Sakar Gandra um lævísa fléttu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Stefán Einar hæddist að formanni Sjálfstæðisflokksins á bjórkvöldi -„Þarf að gyrða sig í brók“

Stefán Einar hæddist að formanni Sjálfstæðisflokksins á bjórkvöldi -„Þarf að gyrða sig í brók“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“

Rétthafar æfir yfir Múmínlundinum í Kjarnaskógi – „Þetta er blygðunarlaust höfundarréttarbrot“