Sky News skýrir frá þessu og segir að í samtali við The Times hafi Sanders sagt að Rússland, Kína og Íran séu „hin nýju Öxulveldi“ og að þriðja heimsstyrjöldin geti brotist út innan fimm ára ef ekki verði gripið til aðgerða.
Hann sagði að enn meiri ógn stafi frá þessum ríkjum en frá nasistum 1939 því þau séu háðari og tengdari hvert öðru en hin upprunalegu öxulveldi voru.
Sanders sagði að það sé hægt að koma í veg fyrir stríð ef NATÓ-ríkin styrkja heri sína svo um munar.
„Flest möt segja þér að við höfum fimm til tíu ár áður en Rússland verður búið að ná fullum styrk og getur ógnað á svipaðan hátt og áður en stríðið í Úkraínu hófst,“ sagði hann.