Jacob Kaarsbo, sérfræðingur hjá dönsku hugveitunni Tænketanken Europa og fyrrum aðalgreinandi hjá leyniþjónustu danska hersins, segir að það virki þegar Pútín hefur í hótunum.
Hann ræddi málið nýlega í umræðuþættinum „Debatten“ hjá Danska ríkissjónvarpinu. Sagði Kaarsbo að Kremlverjar noti fjölmiðla til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina og að stríðið geti stigmagnast og að kjarnorkuvopnum verði beitt. Þetta geri þeir til að fá Vesturlönd til að hvika frá stuðningi sínum við Úkraínu. „Og þetta virkar. Maður verður að taka hattinn ofan fyrir Pútín og handlöngurum hans: Þeir eru mjög góðir í þessu og margir stjórnmálamenn og álitsgjafar hoppa á vagninn,“ sagði Kaarsbo.
Hann benti á að áður hafi margir haft áhyggjur af hvað myndi gerast ef Úkraínumenn myndu ráðast á Krím. Það hafi þeir gert og nákvæmlega ekkert hafi gerst.
Hann sagði að ástæða sé til að ætla að það sama gildi um heimsstyrjöldina sem Pútín varar við, hann muni ekki hefja hana. Meiri ástæða sé til að hafa áhyggjur af hiki NATÓ-ríkja við að heimilda Úkraínumönnum að nota vopnin frá þeim til árása á rússneskt landsvæði.
„Til að halda lokinu á pottinum er nauðsynlegt að sýna að við sættum okkur ekki við þetta, jafnvel þótt Rússland sé kjarnorkuveldi. Ástæðan er að þetta sendir skilaboð um að allir sem ráða yfir kjarnorkuvopnum og hafa illt í huga, geti leyft sér hvað sem er. Við lendum í hættulegum spíral, þar sem kjarnorkuvopn dreifast stjórnlaust, ef við setjum ekki fótinn niður hér,“ sagði hann og vísaði meðal annars til Írans í þessu samhengi.