fbpx
Laugardagur 12.júlí 2025
Fréttir

Bragi: Þjóðverjarnir á Keflavíkurflugvelli steinhissa – „That can‘t be right“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. maí 2024 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það þarf engin að finna upp hjólið í þessum málum – einungis hugrekkið til að bjóða upp á þessa lágmarksþjónustu sem svo mörg kalla eftir,“ segir Bragi Gunnlaugsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Í grein sinni skrifar Bragi um almenningssamgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli og vísar í ummæli Guðmundar Daða Rúnarssonar, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gærmorgun.

Guðmundur sagði þar að þjónusta Strætó við flugstöðina væri fyrst og fremst fyrir starfsfólk flugvallarins og kvaðst ánægður með staðsetningu strætóskýla við flugstöðina. Í þættinum kom fram að gagnrýnt hefði verið hversu langt frá flugstöðinni strætóskýlin eru.

Bragi klórar sér í kollinum yfir þessu og segir að Keflavíkurflugvöllur hljóti þá að vera eini alþjóðaflugvöllurinn í heiminum þar sem almenningssamgöngur eru ekki hugsaðar fyrir viðskiptavini.

„Þessi skortur á grunnþjónustu fyrir farþega er ekki einungis bagalegur fyrir þau sem vilja komast á einfaldan og bíllausan hátt í millilandaflug, heldur ótrúlega slæm (og neyðarleg fyrir okkur sem þjóð) fyrsta upplifun þeirra sem heimsækja okkur,“ segir Bragi og nefnir dæmi.

„Eins og Þjóðverjarnir sem voru samferða mér úr flugi um daginn sögðu þegar þeir fundu engar samgöngur af vellinum: „That can‘t be right.“ Þeir eru eðlilega vanir því að á flugvöllum séu risastór skilti sem benda á almenningssamgöngur í borgina – því það er ekki eins og ferðalaginu ljúki á flugvellinum.“

Bragi bendir á að í fjölmörg ár hafi verið kallað eftir endurbótum og nútímavæðingu samgangna á flugvöllinn.

„Raunar lofaði fyrrverandi innviðaráðherra að málin yrðu skoðuð fyrir sumarið. Í fyrra. Ekkert bólar á tillögum og orð Guðmundar setja vissulega tóninn af hverju svo er. Samtök um bíllausan lífsstíl kalla eftir því að samtalið um almenningssamgöngur á Keflavíkurflugvöll sé tekið alvarlega. Það þarf engin að finna upp hjólið í þessum málum – einungis hugrekkið til að bjóða upp á þessa lágmarksþjónustu sem svo mörg kalla eftir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fundu músaskít og beinagrindur út um allt hús – Kröfðust 22 milljón króna

Fundu músaskít og beinagrindur út um allt hús – Kröfðust 22 milljón króna
Fréttir
Í gær

Var að keyra í bílaröð á Vesturlandsvegi og fékk hraðasekt – „Þessi upphæð er kvikindisleg“

Var að keyra í bílaröð á Vesturlandsvegi og fékk hraðasekt – „Þessi upphæð er kvikindisleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á ræðismann við störf á Íslandi – „Ég ætla að drepa ykkur öll“

Réðst á ræðismann við störf á Íslandi – „Ég ætla að drepa ykkur öll“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

150 íbúða hverfi við Flensborgarhöfn í uppnámi – Nágrannar höfðu betur gegn Hafnarfjarðarbæ

150 íbúða hverfi við Flensborgarhöfn í uppnámi – Nágrannar höfðu betur gegn Hafnarfjarðarbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úrskurðuð í gæsluvarðhald í tvo daga til vegna hnífsstungu við Trönuhjalla

Úrskurðuð í gæsluvarðhald í tvo daga til vegna hnífsstungu við Trönuhjalla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Stjórnarandstaðan á Alþingi vitnar af einhverjum ástæðum aldrei í þessa umsögn“

„Stjórnarandstaðan á Alþingi vitnar af einhverjum ástæðum aldrei í þessa umsögn“