Þingfest var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem héraðssaksóknari hefur höfðað gegn konu á fertugsaldri vegna atviks sem átti sér stað aðfaranótt þriðjudagsins 11. apríl 2023.
Atvikið átti sér stað utandyra við Laugaveg 78 í Reykjavík. Konan er ákærð fyrir brot gegn valdstjórninni og sökuð um að hafa slegið lögreglumann hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut af roða á hægra kinnbeini og við gagnauga.
Málið varðar við 1. málsgrein 106. greinar almennra hegningarlaga, en þar segir:
„Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta … 1) fangelsi allt að 6 árum. [Ef brot samkvæmt þessari málsgrein beinist að opinberum starfsmanni, sem að lögum hefur heimild til líkamlegrar valdbeitingar, má beita fangelsi allt að 8 árum.] 2) [Beita má sektum, ef brot er smáfellt.]“
Héraðssaksóknari krefst þess að konan væri dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.