fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fréttir

Ekkert ferðaveður og appelsínugul viðvörun

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. mars 2024 07:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Appelsínugul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum vegna norðaustan stórhríðar með talsverðri snjókomu og skafrenningi. Viðvörunin tók gildi í morgun og verður í gildi til klukkan 18 að óbreyttu.

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Í skeyti sem Veðurstofan sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir því að veður gangi niður að ráði fyrr en að morgni laugardagsins 23. Mars næstkomandi. Gert er ráð fyrir mikilli úrkomu með þessu vetrarveðri.

 „Þá verður einnig sérstaklega fylgst með stöðunni á Súðavíkurhlíð, Flateyrarvegi og Raknadalshlíð í Patreksfirði vegna mögulegrar snjóflóðahættu gangi spáin eftir,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.

Þar er enn fremur bent á að þetta kunni meðal annars að hafa samgöngutruflanir í för með sér en sem fyrr er vegfarendum bent á vef Vegagerðarinnar www.umferdin.is fyrir upplýsingar um færð á vegum auk www.vedur.is fyrir upplýsingar um veður og veðurhorfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra