fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Náði ótrúlegri ljósmynd frá Akureyri – Veistu hvað þetta er?

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. mars 2024 13:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Býsna mögnuð ljósmynd birtist á vefnum Reddit í fyrrinótt sem tekin var skammt norður af Akureyri eftir miðnætti á mánudagskvöld.

Notandi sem kallar sig thatonecityinchina birti myndina sem sýnir undarlegt fyrirbæri á himninum í kringum dansandi norðurljós sem skörtuðu sínu fegursta.

Notandinn leitaði til netverja til að spyrja hvort einhver vissi hvað þetta fyrirbæri væri enda hafði hann sjálfur ekki hugmynd um það.

Notendur Reddit voru fljótir að svara og bentu viðkomandi á að um væri að ræða fyrirbæri sem myndaðist í kjölfar eldflaugaskots SpaceX. Falcon 9 eldflaug var skotið á loft frá Kaliforníu á mánudagskvöld og myndaðist þessi tilkomumikli spírall þegar eldflaugin losaði sig við eldsneyti og snerist.

Fleiri en þessi tiltekni notandi Reddit náðu myndum af fyrirbærinu og sagði RÚV til dæmis frá því í gær að Rúnar Freyr Júlíusson, leiðsögumaður hjá GeoTravel í Mývatnssveit, hafi náð myndum af atvikinu.

Þá var rætt við Sævar Helga Bragason, Stjörnu-Sævar, sem sagði að eldsneytið hefði engin áhrif á mannfólkið þar sem það kemur til með að brotna upp í útfjólubláu ljósi frá sólinni.

Can anyone help identify this mystery galaxy shape that appeared in the Northern Lights?
byu/thatonecityinchina inVisitingIceland

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki
Fréttir
Í gær

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“
Fréttir
Í gær

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum
Fréttir
Í gær

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“